Eyjamenn að missa af titlinum?

Þegar upp var staðið var 1:1 jafntefli gegn KR í kvöld ágætis úrslit fyrir leikmenn ÍBV. Eyjamenn léku manni færri í heilar 74 mínútur eða svo eftir að Brynjari Gauta Guðjónssyni var vísað af leikvelli. Dómurinn var afar harður, Brynjar braut vissulega á KR-ingnum en gult spjald og aukaspyrna hefði verið rétt. Vissulega hægt að […]
Ný siglingamerki við Landeyjahöfn

Unnar Valby Gunnarsson, skipstjóri á Baldri segist hafa nýtt sér reynslu skipstjóra Herjólfs til að koma í veg fyrir að skipið snúist í innsiglingunni við Landeyjahöfn. Í morgun sigldi skipið í um þriggja metra ölduhæð, sem er hálfum metra meira en miðað hefur verið við til þessa. Eins og sjá má á meðfylgjandi frétt Sighvatar […]
Orkan styrkir ÍBV

Orkan býður Eyjamönnum upp á að styrkja ÍBV með nýstárlegum hætti í dag. Vegna stórleiks ÍBV og KR klukkan 17:00 á eftir, renna fimm krónur af hverjum seldum lítra í Vestmannaeyjum til ÍBV. Þá mun Orkan einnig bjóða upp á bleika kleinuhringi í hálfleik í leik ÍBV og KR á Hásteinsvellinum. (meira…)
Afskriftir sýna hvar óráðsían var mest

Allir vita að afskriftir seinustu ára hafa verið gríðarlegar. Ein af þeim söguskýringum sem hafa verið bornar á borð fyrir hina íslensku þjóð eftir hrun er sú að sjávarútvegurinn hafi sem heild stundað brask í góðærinu og hvergi hafi verið meira um afskriftir en hjá „kvótagreifunum“. Þessi söguskýring virðist því miður vera orðin jafn útbreidd […]
Ekkert því til fyrirstöðu að spila í dag

Það verður væntanlega ekkert því til fyrirstöðu að stórleikur ÍBV og KR geti farið fram í dag, mánudag á Hásteinsvelli. Leikurinn átti að fara fram í gær en vegna veðurs komust KR-ingar ekki til Eyja. Þessa stundina er hins vegar rjómablíða í Eyjum, sól og hægur vindur og samkvæmt veðurspánni á það að haldast þannig […]