Orkan býður Eyjamönnum upp á að styrkja ÍBV með nýstárlegum hætti í dag. Vegna stórleiks ÍBV og KR klukkan 17:00 á eftir, renna fimm krónur af hverjum seldum lítra í Vestmannaeyjum til ÍBV. Þá mun Orkan einnig bjóða upp á bleika kleinuhringi í hálfleik í leik ÍBV og KR á Hásteinsvellinum.