Nemendur 10. bekkjar í Grunnskóla Vestmannaeyja taka sér stöðu við þrjár fjölfarnar gangbrautir frá og með mánudeginum 2. nóvember. Markmiðið er að auka öryggi yngri nemenda á leið í skólann í morgunmyrkrinu.
Þetta er í áttunda sinn sem tíundubekkingar í GRV sinna gangbrautavörslu. Verkefnið stendur út febrúar 2027 og verða nemendurnir við gangbrautir á Skólavegi, á Kirkjuvegi við Vallargötu og við Hraunbúðir.
Gangbrautaverðirnir klæðast gulum vestum og aðstoða yngri nemendur við að komast yfir göturnar. Lögreglan í Vestmannaeyjum heldur jafnframt áfram venjubundnu eftirliti við skólana og verður nemendum innan handar eftir þörfum.
Í sameiginlegri fréttatilkynningu GRV og Landsbankans kemur fram að verkefnið efli samfélagsvitund og samkennd og gefi nemendum tækifæri til að taka þátt í samfélagsmálum á ábyrgan hátt.
Landsbankinn styður verkefnið líkt og undanfarin ár með styrk í ferðasjóð 10. bekkjar og útvegar vesti fyrir gangbrautaverðina. Í tilkynningunni færir skólinn bankanum og Jóni Óskari Þórhallssyni, útibússtjóra í Vestmannaeyjum, þakkir fyrir samstarfið.