Tap gegn ÍR

ÍBV sótti ÍR heim fyrr í kvöld. Þetta var fyrsti leikurinn í 2.umferð en ÍBV voru taplausir fyrir leikinn. ÍR hafði yfirhöndina allan tímann. Í fyrri hálfleik varð mestur munur 10-6, en leikmenn ÍBV náðu að jafna í 12-12. Staðan í hálfleik var 17-14 ÍR í vil en lokatölur urðu 36:31. (meira…)

�?etta líka fína kast

Við erum á leið til Eyja í kapp við bræluspá með þennan líka fína afla eða 1000 tonn, fengið í einu kasti auk þess sem þeir á Vilhelm Þorsteinssyni fengu líka 400 tonn úr pokanum. Þetta er því risa kast eða samtals 1400 tonn. Takk fyrir og góða nótt…………….. (meira…)

Opin æfing hjá B-liðinu í kvöld

Það hefur varla farið framhjá landsmönnum að B-lið ÍBV í handbolta spilar á morgun, laugardag, gegn HK2 í Eimskipsbikarnum. Leikurinn hefst klukkan 13:00 en nú þegar er búið að selja um 400 miða á leikinn og stefnir allt í að það verði uppselt á leikinn. Til að mæta eftirspurn, hafa liðsmenn B-liðsins ákveðið að hafa […]

Í næstu viku söfnum við fyrir fátæka, ekki andskotans rónana

Nýr prestur var við sína fyrstu messu og var svo hræddur að hann gat varla komið upp orði. Eftir messuna spurði hann biskupinn hvernig sér hefði gengið? Biskupinn sagði að honum hefði farnast ágætlega en bætti síðan við að það gæti hjálpað honum með næstu messu að setja örlítið vodka út í vatnsglasið sitt, gamli […]

Blanda af nýjum og gömlum lögum

Lay Low, Lovísa Elísabet Sigrúnar­dóttir, verður með tónleika á Pró­fastinum næsta laugardagskvöld. Lay Low hefur nýlega gefið út plötuna „Brostnir strengir“ sem hefur fengið mikið lof gagnrýn­enda. Lay Low kemur hingað ásamt sex manna hljómsveit og verður með nýtt og eldra efni í bland og því má búast við hörku tónleikum sem eru þeir fyrstu […]

Ekki fæddur á réttum stað á réttum tíma

Eftir að hafa búið 32 ár úti á landsbyggðinni þá liggur mér þetta mjög heitt á hjarta!Fyrirtæki og allt annað megnugt fólk úti í hinni dreifðu landsbyggð stofni stjóð til að byggja námsmannaíbúðir fyrir unga fólkið sem það sjálft hefur alið upp í sinni heimabyggð. (meira…)

Aðild að Evrópusambandinu til umræðu á laugardagsfundi

Frosti Sigurjónsson hagfræðingur verður gestur Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum á laugardagsfundi, laugardaginn 12. nóvember. Fundurinn verður haldinn í Ásgarði og hefst kl. 11.00. Frosti mun vera með stutta framsögu um Evrópusambandið og í framhaldi svara spurningum gesta, en Frosti er ötull talsmaður þess að aðildarumsókn að Evrópusambandinu verði lögð til hliðar og stendur ásamt fleirum fyrir […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.