Frosti Sigurjónsson hagfræðingur verður gestur Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum á laugardagsfundi, laugardaginn 12. nóvember. Fundurinn verður haldinn í Ásgarði og hefst kl. 11.00. Frosti mun vera með stutta framsögu um Evrópusambandið og í framhaldi svara spurningum gesta, en Frosti er ötull talsmaður þess að aðildarumsókn að Evrópusambandinu verði lögð til hliðar og stendur ásamt fleirum fyrir undirskriftarsöfnun þess efnis á vefsíðunni www.skynsemi.is.