Málefni Herjólfs verða til umræðu á laugardagsfundi í Ásgarði þann 31. október klukkan 12. Gestir fundarins verða Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., og Páll Scheving, stjórnarformaður félagsins.
Þeir munu fara yfir stöðu félagsins og það sem framundan er í rekstrinum. Fundargestum gefst jafnframt tækifæri til að eiga beint samtal við stjórnendur Herjólfs um málefni félagsins.
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti sem frambjóðendahópur Sjálfstæðisflokksins í síðustu bæjarstjórnarkosningum sér um.
Allir eru velkomnir á fundinn, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.