ÍBV fékk háttvísis- og grasrótarverðlaun

Ársþing KSÍ sem nú fer fram í 66. skipti var sett í morgun klukkan 11.00 og stendur enn yfir. Þar hlaut ÍBV háttvísisverðlaunin í Pepsi-deild kvenna. Einnig voru HK/Víkingur og Völsungur heiðruð fyrir háttvísi í 1. deild kvenna. (meira…)
Sálin í kvöld í Höllinni

Vinsælasta hljómsveit landsins síðustu 20 árin, Sálin hans Jóns míns, kemur til Eyja á laugardag og skemmtir í Höllinni í kvöld, laugardag. Þeir félagar hafa ekki komið í tæp 2 ár til Eyja og því löngu kominn tími á alvöru Sálardansleik í Eyjum. Að sögn Stefáns Hilmarssonar, söngvara og forsprakka sveitarinnar, er tilhlökkun í peyjunum, […]
Slakur sóknarleikur var Eyjamönnum að falli í dag

Arfaslakur sóknarleikur varð ÍBV að falli gegn Víkingum í Eyjum í dag en lokatölur urðu 21:22 fyrir gestunum, eftir að staðan í hálfleik var 8:9. Þegar stundarfjórðungur var liðinn af leiknum höfðu heimamenn aðeins skorað tvö mörk, þar af annað úr vítakasti, sem segir ýmislegt um sóknarleik liðsins þessa dagana. Sigurður Bragason náði að hífa […]