Arfaslakur sóknarleikur varð ÍBV að falli gegn Víkingum í Eyjum í dag en lokatölur urðu 21:22 fyrir gestunum, eftir að staðan í hálfleik var 8:9. Þegar stundarfjórðungur var liðinn af leiknum höfðu heimamenn aðeins skorað tvö mörk, þar af annað úr vítakasti, sem segir ýmislegt um sóknarleik liðsins þessa dagana. Sigurður Bragason náði að hífa sóknarleik liðsins upp en bestur í dag var markvörðurinn Kolbeinn Arnarson, sem varði 17 skot, þar af eina víti.