Takk fyrir mig, Vestmannaeyjar

Ég vil þakka öllum þeim sem hafa styrkt mig og stutt mig í gegnum þessi erfiðu veikindi sem ég er að ganga í gegnum. Það er á svona tímum sem maður elskar það að vera Vestmannaeyingur. Maður finnur stuðninginn og finnur fyrir því hvað fólk styður við bakið á manni. Ég vil sérstaklega þakka Einari […]
TM og ÍBV stolt af Pæjumótinu

Eins og áður hefur komið fram, fékk ÍBV-íþróttafélag Grasrótarviðurkenningu Knattspyrnusambands Íslands á ársþingi þess fyrr í mánuðinum. Viðurkenninguna fékk félagið fyrir Pæjumót TM í Vestmannaeyjum en á dögunum kom Einar Friðþjófsson, mótsstjóri færandi hendi í útibú TM í Eyjum og afhenti starfsmönnum þar viðurkenningaskjalið. (meira…)
Sigur og tap í fótboltanum

Karlalið ÍBV í knattspyrnu lék tvo leiki um síðustu helgi. Á laugardaginn lék liðið í Lengjubikarnum gegn ÍA en leikurinn fór fram á Akranesi. Leiknum lauk með 2:1 sigri ÍA en mark ÍBV gerði Víðir Þorvarðarson. Seinni leikurinn var svo daginn eftir, á sunnudag en þá lék ÍBV gegn 3. deildarliðinu KV eða Knattspyrnufélagi Vesturbæjar. […]