Eins og áður hefur komið fram, fékk ÍBV-íþróttafélag Grasrótarviðurkenningu Knattspyrnusambands Íslands á ársþingi þess fyrr í mánuðinum. Viðurkenninguna fékk félagið fyrir Pæjumót TM í Vestmannaeyjum en á dögunum kom Einar Friðþjófsson, mótsstjóri færandi hendi í útibú TM í Eyjum og afhenti starfsmönnum þar viðurkenningaskjalið.