99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Mynd/HBH
Í lok september voru 99 á atvinnuleysisskrá í Vestmannaeyjum. Vinnumálastofnun bendir á að atvinnuleysi í Eyjum sveiflist eftir árstíðum. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Í lok september voru 99 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í Vestmannaeyjum, samanborið við 87 á sama tíma í fyrra. Fjölgunin nemur tólf manns, eða 13,8 prósentum. Vinnumálastofnun bendir þó á að atvinnuleysi í Eyjum sveiflist eftir árstíðum og aukning frá júlí til september sé ekki óeðlileg.

Þetta kemur fram í svari Ástu Ásgeirsdóttur, deildarstjóra greiningardeildar Vinnumálastofnunar, við fyrirspurn Eyjafrétta.

Ásta segir atvinnuleysi undanfarin ár hafa verið einna lægst í júlí. Bæði árið 2023 og 2025 hafi það verið hæst í október. Samkvæmt yfirliti stofnunarinnar voru 108 á skrá í októberlok 2023 og 109 í októberlok 2025.

Í ár fjölgaði á skránni úr 78 í júlílok í 88 í ágústlok og 99 í septemberlok.

Sjá ekki óvenjulegar breytingar í sjávarútvegi

Í flokknum fiskveiðar, fiskeldi og fiskvinnsla voru 28 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í septemberlok, samanborið við 19 ári fyrr. Ásta segir stofnunina þó ekki sjá breytingar í þeim flokki umfram eðlilegar árstíðabundnar sveiflur. Atvinnuleysi í þessum greinum hafi verið mun meira árið 2023 og fram á árið 2024.

Yfirlitið sýnir jafnframt að fólki á skrá úr þessum greinum fækkaði úr 35 í ágústlok í 28 í septemberlok í ár, þótt heildarfjöldi á atvinnuleysisskrá ykist á sama tíma.

Birtir ekki hlutfall fyrir einstök sveitarfélög

Ásta staðfestir að Vinnumálastofnun birti ekki sérstaklega atvinnuleysishlutfall niður á sveitarfélög. Stofnunin birtir hins vegar fjölda atvinnulausra í lok hvers mánaðar á opnu mælaborði á vef sínum.

Nýjustu fréttir

Sigurganga Erlings heldur áfram í þýsku B-deildinni
Fæst nóg stórgrýti í brimvarnargarðinn við Eiðið?
Rúmlega 40 milljóna salernisframkvæmd hélt áfram án byggingarleyfis
Svekkjandi tap hjá Heimi og lærisveinum gegn Austurríki
Handverk og mannlíf í Höllinni
ÍBV nældi í stig gegn toppliði Hauka
Tilnefningin mikilvæg viðurkenning og hvatning
Miðflokkurinn lagði til tveggja vikna sumarlokun leikskólanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.