Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 

Hermundur Sigmundsson, prófessor og hugmyndasmiður Kveikjum neistann, segir fyrstu niðurstöður verkefnisins í Grunnskóla Vestmannaeyja sýna að markviss þjálfun, reglulegt stöðumat og verkefni við hæfi hvers barns geti skilað góðum árangri. Verkefnið er nú komið vel á veg í tíu ára vegferð sinni og Hermundur segir markmiðið óbreytt: Að efla grunnfærni, líðan og áhugahvöt og lyfta […]

99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu

Mynd/HBH

Í lok september voru 99 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í Vestmannaeyjum, samanborið við 87 á sama tíma í fyrra. Fjölgunin nemur tólf manns, eða 13,8 prósentum. Vinnumálastofnun bendir þó á að atvinnuleysi í Eyjum sveiflist eftir árstíðum og aukning frá júlí til september sé ekki óeðlileg. Þetta kemur fram í svari Ástu Ásgeirsdóttur, deildarstjóra greiningardeildar Vinnumálastofnunar, […]

Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman

Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, tekur eindregið undir mikilvægi þess starfs sem unnið hefur verið undir merkjum Kveikjum neistann í Grunnskóla Vestmannaeyja. Hún segir sérstaklega eftirtektarvert hvernig skólinn, foreldrar, sveitarfélagið og samfélagið í heild hafa tekið höndum saman um verkefnið og velferð barnanna.  Inga þekkir skólastarfið í Vestmannaeyjum af eigin raun. Eftir að hún tók […]

Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða

Radarhýsi Landhelgisgæslunnar er komið á sinn stað á Stórhöfða. Þetta má sjá í nýju myndbandi Halldórs Halldórssonar frá því í dag þar sem flogið er yfir svæðið við Stórhöfðavita. Á myndunum sést sívalningslaga hýsið með viðarklæðningu og ljósum toppi skammt frá vitanum. Jarðrask er í kringum hýsið eftir framkvæmdirnar. Eyjafréttir greindu nýverið frá því að […]

Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla

Safnahelgin í Vestmannaeyjum verður haldin dagana 29. október til 1. nóvember með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Meðal viðburða eru tónleikar í sundlauginni, bókakynningar, myndlistarsýningar, hrekkjavökufjör og ljósmyndasýningar. Sérstök athygli verður vakin á því að á næsta ári verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu. Safnahelgin hefur um árabil verið fastur liður í menningarlífi Vestmannaeyja og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.