Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Nýja radarhýsi Landhelgisgæslunnar er komið á sinn stað við Stórhöfðavita. Hýsið sést vinstra megin á myndinni en því er ætlað að hýsa ratsjár- og fjarskiptabúnað til að efla vöktun á hafsvæðinu við Eyjar. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson
Halldor B Staff
Halldór B. Halldórsson

Radarhýsi Landhelgisgæslunnar er komið á sinn stað á Stórhöfða. Þetta má sjá í nýju myndbandi Halldórs Halldórssonar frá því í dag þar sem flogið er yfir svæðið við Stórhöfðavita.

Á myndunum sést sívalningslaga hýsið með viðarklæðningu og ljósum toppi skammt frá vitanum. Jarðrask er í kringum hýsið eftir framkvæmdirnar.

Eyjafréttir greindu nýverið frá því að varðskipið Freyja hefði flutt búnaðinn til Vestmannaeyja 22. október. Halldór myndaði einnig flutninginn og mátti þar sjá búnaðinn um borð í skipinu og á leið landleiðina upp á Stórhöfða.

Eins og fram kom í frétt Eyjafrétta 14. september er hýsið ætlað undir ratsjár- og fjarskiptabúnað. Uppsetning þess er liður í að efla ratsjárvöktun á hafsvæðinu við Vestmannaeyjar. Staðsetningin er um 48 metra suðsuðvestur af Stórhöfðavita.

Myndband Halldórs frá Stórhöfða má sjá hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.