Mladenovic ekki meira með?

Svo gæti farið að línumaðurinn sterki Ivana Mladenovic hefði leikið sinn síðasta leik fyrir kvennalið ÍBV í handbolta. Sindri Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar staðfesti það í samtali við Eyjafréttir.is en leikmaðurinn er ekki með landvistarleyfi og ef fram heldur sem horfir, gæti hún þurft að yfirgefa landið á mánudaginn. (meira…)
Hermann rekinn af velli

ÍBV tapaði í dag í miklum markaleik í Lengjubikar karla þegar liðið lék gegn FH. FH skoraði fyrsta mark leiksins en Eyjamenn jöfnuðu og komust yfir. Hafnfirðingar jöfnuðu metin 2:2 en aftur komust Eyjamenn yfir. Hins vegar fékk Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV sem lék með liðinu, að líta rauða spjaldið og skömmu síðar fékk Davíð […]
Er eyðilagður maður

Svavar Vignisson, þjálfari ÍBV var eðlilega heldur þungur á brún þegar blaðamaður Eyjafrétta.is hitti á hann eftir leik. Hann telur ekki að Herjólferð hafi haft áhrif á leikmenn fyrir leik, né að spennustig hafi verið of hátt hjá þeim í leiknum. (meira…)
Bikardraumurinn fauk út í veður og vind

Bikardraumur ÍBV-liðs kvenna fauk út í veður og vind í dag, þegar liðið steinlá fyrir Val í Laugardalshöllinni í dag. ÍBV byrjaði leikinn ágætlega og liðið virtist vel stemmt. En það var stutt gaman skemmtilegt því Valur tók síðan öll völd á vellinum. Valur komst í 7-3 og hafði yfirburðastöðu í hálfleik, 16-9. Eitthvað hefur […]
Erum á uppleið en þær á niðurleið

Um helgina verður risahelgi í íslenska handboltanum, því þá fara fram undanúrslit og úrslit í bikarkeppnum karla og kvenna. Allir leikirnir fara fram í Laugardalshöll og reyndar eru þeir fleiri leikirnir því yngri flokkarnir spila líka á sama stað, sömu helgi. Kvennalið ÍBV leikur gegn Val í undanúrslitum í dag, laugardag klukkan 13:30 en í […]
Haldið upp á �?skulýðsdaginn með Country Gospel í Landakirkju

Vegna óviðráðanlegra orsaka verður Gospelmessunni með Kór Landakirkju, sem átti að verða 17. mars, frestað um óákveðinn tíma en í stað þess ætlar Æskulýðsfélag Landa kirkju að standa fyrir Country Gospel messu nk. sunnudag 10. mars kl 20:00. Messan verður með svipuðu sniði og Johnny Cash messan sem haldin var í október sl. og Elvis […]
Hvað finnst þér um að auka fiskveiðar?

Hægri grænir, flokkur fólksins, hefur sett fram nýja stefnu í fiskveiðstjórnun. Áratugalöng tilraun er mjög umdeild og hefur skapað mikið ósætti og óánægju meðal þjóðarinnar. Afli hefur stöðugt minnkað þrátt fyrir öll vísindi og ráðgjöf Hafró og ekkert er í sjónmáli annað en áframhaldandi óvissa og óánægja. (meira…)