ÍBV tapaði í dag í miklum markaleik í Lengjubikar karla þegar liðið lék gegn FH. FH skoraði fyrsta mark leiksins en Eyjamenn jöfnuðu og komust yfir. Hafnfirðingar jöfnuðu metin 2:2 en aftur komust Eyjamenn yfir. Hins vegar fékk Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV sem lék með liðinu, að líta rauða spjaldið og skömmu síðar fékk Davíð Þorleifsson einnig að líta rauða spjaldið. Eyjamenn léku því tveimur færri síðasta stundarfjórðuninn.