Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Margir mættu í bleiku til vinnu í tilefni dagsins. Ljósmyndir/vsv.is

Bleiki dagurinn setti svip á morgunkaffið hjá Vinnslustöðinni í dag, miðvikudaginn 21. október. Boðið var upp á kaffi og bakkelsi að venju á þessum degi og flestar terturnar voru að sjálfsögðu bleikar.

Á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar segir Helena Björk Þorsteinsdóttir að það sé alltaf gaman að gera aðeins meira úr morgunkaffinu. Bleika bakkelsið hafi slegið tóninn og samverustundir sem þessar skapi góðan anda og gefi starfsfólki tækifæri til að setjast niður saman og spjalla. Um leið sé verið að sýna mikilvægu málefni stuðning.

Á Bleika deginum hvetur Krabbameinsfélag Íslands landsmenn til að bera Bleiku slaufuna og klæðast bleiku til að sýna konum sem greinst hafa með krabbamein stuðning og samstöðu.

Vinnslustöðin sendir jafnframt hlýjar kveðjur til allra sem takast á við krabbamein og þeirra sem standa þeim nærri. Hér má sjá fleiri myndir frá morgninum.

Auðvitað voru bleikar tertur á boðstólnum.

Nýjustu fréttir

Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra enn ókominn
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til vörukynninga
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en verkefnið enn í þróun 
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.