Líkamsrækt við Hástein skrefi nær – tveir sátu hjá
Tölvugerð mynd af fyrirhugaðri líkamsræktaraðstöðu og nýjum inngangi við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Tillaga að breyttu deiliskipulagi svæðisins er nú í auglýsingu. Mynd/Vestmannaeyjabær.

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 13. október að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi íþróttasvæðisins við Hástein. Tillagan gerir ráð fyrir nýrri líkamsræktaraðstöðu, niðurrifi eldri búningsklefa og nýjum inngangi íþróttamiðstöðvarinnar. Sjö fulltrúar D- og E-lista samþykktu tillöguna en tveir fulltrúar Miðflokksins sátu hjá.

Fulltrúar Miðflokksins, Jón Þór Guðjónsson og Jóhann Ingi Óskarsson, ítrekuðu við afgreiðsluna fyrri bókun flokksins í umhverfis- og skipulagsráði. Þar hafði verið kallað eftir frekara samráði og heildstæðri framtíðarsýn fyrir íþróttasvæðið.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu hins vegar áherslu á að breytingarnar væru mikilvægt framfaraskref sem myndi bæta aðstöðuna og auka aðdráttarafl íþróttamiðstöðvarinnar fyrir fólk á öllum aldri.

Allt að 950 fermetra líkamsræktaraðstaða

Samkvæmt auglýstri tillögu er gert ráð fyrir byggingarreit fyrir allt að 950 fermetra líkamsræktaraðstöðu á tveimur hæðum við norðvesturhluta íþróttamiðstöðvarinnar.

Einnig er gert ráð fyrir niðurrifi eldri klefa, alls 663 fermetra. Við það skapast rými fyrir dvalarsvæði framan við innganginn og nýjan byggingarreit fyrir inngang íþróttahússins, að hámarki 680 fermetra á tveimur hæðum.

Framkvæmdirnar munu raska hrauni og núverandi dvalarsvæði við innganginn. Samkvæmt kynningu bæjarins er gert ráð fyrir nýjum dvalarsvæðum og áherslu á góðan umhverfisfrágang að framkvæmdum loknum.

Ágreiningur um samráð

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 21. september lagði fulltrúi Miðflokksins til að málinu yrði frestað og fundað með hagsmunaaðilum. Sú tillaga var felld með fjórum atkvæðum gegn einu.

Miðflokkurinn sagðist styðja metnaðarfulla uppbyggingu íþróttamannvirkja en vildi að horft yrði á svæðið í heild, meðal annars framtíðaraðstöðu fyrir fimleika. Auglýsing skipulagstillögu gæti ekki komið í stað samráðs áður en meginlínur uppbyggingar væru ákveðnar.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í ráðinu töldu frestun hins vegar tefja uppbygginguna. Þeir bentu á fyrirliggjandi samning við rekstraraðila og að auglýsing tillögunnar gæfi hagsmunaaðilum færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Athugasemdafrestur til 25. nóvember

Tillagan er nú í auglýsingu. Skipulagsgögn eru aðgengileg í Ráðhúsinu, á vef bæjarins og í Skipulagsgátt HMS undir máli númer 1190/2026.

Skriflegum ábendingum og athugasemdum þarf að skila í gegnum Skipulagsgátt eigi síðar en 25. nóvember 2026, samkvæmt auglýsingu bæjarins.

 


Þessu tengt:

Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað

Tímaáætlun vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar World Class við Íþróttamiðstöðina hefur riðlast. Samkvæmt tímaáætlun sem fylgdi samningsskilmálum átti Vestmannaeyjabær að leggja fram breytingu á deiliskipulagi innan 60 almanaksdaga frá samþykki tilboðsins. Fullnaðarhönnun viðbyggingarinnar átti að vera lokið innan 180 daga. Tilboð World Class var samþykkt 25. mars. Skipulagsbreytingin átti því að liggja fyrir eigi síðar en 24. […]

Nýjustu fréttir

Líkamsrækt við Hástein skrefi nær – tveir sátu hjá
Spegilmyndir í morgunblíðunni
Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.