Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna

Eyjakonan og knattspyrnukonan Elísa Viðarsdóttir greindi frá því fyrr í kvöld að hún hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir farsælan feril í meistaraflokki. Hún leikur sinn síðasta leik á morgun, föstudag, þegar Breiðablik tekur á móti FH í lokaumferð Bestu deildar kvenna. Elísa greindi frá ákvörðun sinni í færslu á Instagram. Eins og […]

Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru

Knattspyrnukonan Milena Mihaela Patru er íþróttakona mánaðarins. Milena hefur átt gott tímabil með ÍBV í sumar og er ein efnilegasta knattspyrnukona félagsins. Þrátt fyrir að vera aðeins 15 ára hefur Milena fengið tækifæri með meistaraflokki og jafnframt raðað inn mörkunum fyrir yngri flokka félagsins. Á síðasta tímabili lék hún tíu leiki í Lengjudeildinni með ÍBV […]

Herjólfur III tilbúinn til afleysinga

Herjólfur III er tilbúinn til afleysinga ef þörf krefur eftir viðamiklar endurbætur í sumar, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Haffærisskírteini skipsins er þó enn í útgáfuferli hjá Samgöngustofu. Skipið er ekki í söluferli að svo stöddu og beðið er niðurstöðu starfshóps um framtíð ferjumála. Á bæjarstjórnarfundi í Vestmannaeyjum 13. október kom fram í máli bæjarstjóra að Herjólfur […]

Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta, undir stjórn Eyjamannsins Arnars Péturssonar, vann góðan þriggja marka sigur á Póllandi, 35–32, í vináttulandsleik í Katowice í dag. Þetta var fyrri leikur liðanna af tveimur um helgina og fór hann fram fyrir luktum dyrum. Leikurinn var jafn framan af og liðin skiptust á að hafa forystuna. Pólverjar leiddu 7–6 eftir […]

Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja

Varðskipið Freyja flutti í dag búnað til Vestmannaeyja vegna uppsetningar radarhýsis á Stórhöfða. Framkvæmdin er liður í uppbyggingu og eflingu ratsjárvöktunar á hafsvæðinu við Eyjar. Halldór Halldórsson festi flutninginn á myndband. Í myndbandi hans má sjá Freyju við bryggju, áhöfn við hífingu búnaðarins og flutning hans áfram landleiðina. Eins og Eyjafréttir greindu frá í september […]

Það á að hrósa því sem vel er gert

Það er virkilega ánægjulegt að sjá þann kraft sem nýr dýpkunaraðili hefur komið með inn í Landeyjahöfn. Strax á fyrstu vikunum sjáum við hversu miklu máli skiptir að hafa afkastamikinn dýpkunaraðila sem getur nýtt þau tækifæri sem gefast til fulls. Tilkynning Herjólfs ohf. í dag um fulla áætlun á morgun er gott dæmi um það. […]

Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 

Fjarvinna hefur á síðustu árum orðið sífellt stærri hluti af vinnumarkaðnum og opnað á þann möguleika að fólk geti sinnt fjölbreyttum störfum óháð búsetu.  Eyjafréttir ræddu við einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að búa í Vestmannaeyjum en sinna starfi sínu í fjarvinnu. Við fengum þau til að segja okkur frá því hvernig þau rötuðu í […]

Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 

Fjarvinna hefur á síðustu árum orðið sífellt stærri hluti af vinnumarkaðnum og opnað á þann möguleika að fólk geti sinnt fjölbreyttum störfum óháð búsetu.  Eyjafréttir ræddu við einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að búa í Vestmannaeyjum en sinna starfi sínu í fjarvinnu. Við fengum þau til að segja okkur frá því hvernig þau rötuðu í […]

Líkamsrækt við Hástein skrefi nær – tveir sátu hjá

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 13. október að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi íþróttasvæðisins við Hástein. Tillagan gerir ráð fyrir nýrri líkamsræktaraðstöðu, niðurrifi eldri búningsklefa og nýjum inngangi íþróttamiðstöðvarinnar. Sjö fulltrúar D- og E-lista samþykktu tillöguna en tveir fulltrúar Miðflokksins sátu hjá. Fulltrúar Miðflokksins, Jón Þór Guðjónsson og Jóhann Ingi Óskarsson, ítrekuðu við afgreiðsluna fyrri bókun flokksins […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.