Eyjakonan og knattspyrnukonan Elísa Viðarsdóttir greindi frá því fyrr í kvöld að hún hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir farsælan feril í meistaraflokki. Hún leikur sinn síðasta leik á morgun, föstudag, þegar Breiðablik tekur á móti FH í lokaumferð Bestu deildar kvenna. Elísa greindi frá ákvörðun sinni í færslu á Instagram.
Eins og flestir Eyjamenn vita lék Elísa upp alla yngri flokka ÍBV og hóf meistaraflokksferil sinn með félaginu. Þaðan lá leiðin til Kristianstad í Svíþjóð, þar sem hún lék í eitt ár. Að því loknu sneri hún aftur heim til Íslands og gekk til liðs við Val, þar sem hún lék til fjölda ára.
Með Val varð Elísa fjórum sinnum Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari. Fyrir síðasta tímabil samdi hún við Breiðablik og mun fagna Íslandsmeistaratitlinum með liðinu á morgun.
Elísa er 35 ára gömul og lék alls 54 landsleiki fyrir Íslands hönd. Hún hefur átt farsælan feril bæði með félagsliðum sínum og íslenska landsliðinu.
Í Instagram-færslu sinni segir Elísa meðal annars:
,,Það er svo ótrúlega skrýtið að skrifa þessi orð. Fótboltinn hefur verið svo stór hluti af mínu lífi svo lengi sem ég man eftir mér, það er erfitt að ímynda mér lífið án hans”.
„Eftir mikla umhugsun hef ég ákveðið að nú sé komið að því að leggja skóna á hilluna. Ákvörðunin hefur ekki verið auðveld enda er ég að kveðja eitthvað sem hefur mótað mig sem manneskju og gefið mér svo ótrúlega mikið”.


