Það var fallegt um að litast við Vestmannaeyjahöfn í morgun þegar Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta festi þessar myndir á filmu. Í kyrrðinni spegluðust fjöll, skip og hafnarmannvirki í haffletinum og morgunsólin dró fram hlýja haustlitina.
Óskar Pétur kallar myndirnar „Spegilmyndir“ og nafnið á vel við. Örlitlar gárur á sjónum gefa spegilmyndunum líf en annars virðist höfnin nær eins og sléttur spegill undir bláum himni.
Við látum myndirnar hans úr morgunblíðunni gleðja augað í kvöld.




