Engin ferð með Herjólfi í dag

Herjólfur sigldi enga ferð milli lands og Eyja í dag en ófært hefur verið í Landeyjahöfn í allan dag. Síðasta ferð dagsins var felld niður en tilkynnt verður klukkan 7:00 í fyrramálið hvort gera þarf breytingar á áætlun en annars verður siglt samkvæmt áætlun. (meira…)
Lést í umferðarslysi

Banaslys varð á Suðurlandsvegi, skammt frá Þingborg í gær. Sendibifreið og vörubifreið, sem komu úr gagnstæðum áttum rákust á. Ökumaður sendibifreiðarinnar var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík en var úrskurðaður látinn eftir komuna þangað. Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á sjúkrahús en er ekki alvarlega slasaður. Hinn látni var Leifur Ársæll Leifsson, fæddur 8. febrúar 1955 […]
David Moyes varð að manni í Vestmannaeyjum

„Frá kurteisum unglingi í stjóra ensku meistarana. Hvernig dvöl á Íslandi gerði Moyes að manni. – Þetta er fyrirsögn greinar sem birtist í Daily Mail í morgun og fjallar um Íslandsdvöl David Moyes. Í greininni er rætt við Ólaf Jónsson sem þjálfaði unga leikmenn í Vestmannaeyjum í fótbolta. Í æfingaferð í Skotlandi urðu hann og […]