Kvóti, ólympískar veiðar og umburðarlyndi.

Makríllinn hefur komið til okkar sem happadrættisvinningur fyrir land og þjóð. Hann kemur hingað vegna hækkandi sjávarhita í ætisleit, fitnar og verður að miklu verðmæti. Stóru uppsjávarfyrirtækin hafa bætt nýtingu uppsjávarskipa sinna og vinnslunnar, en góð afkoma þeirra síðustu ár kemur ekki síst til vegna veiða og vinnslu makríls. Þá hefur veiði smábáta og togbáta orðið lyftistöng í mörgum sjávarbyggðum og skapað fleiri fyrirtækjum mikla verðmætasköpun og atvinnu sem mikið munar um í mörgum byggðarlögum og minnkar atvinnuleysi.

Á bryggjunum hafa menn áhyggjur af líffræðiþættinum, makríllinn er fullur af pokaseiðum, ýsuseiðum, grásleppu og fleiri tegundum. Við verðum að rannsaka betur á hvern hátt makríllinn getur orðið nytjastofnum landsins skaðvaldur, en menn hafa bent á að víða þar sem mikill makríl gengd hafi komið, hafi hefðbundnir nytjastofnar jafnvel hrunið.

 

Okkur vex fiskur um hrygg.

Í sumar nær tvöfölduðust veiðar línubáta á makríl og voru 7000 tonn. Smábátar og togbátar með úthlutun í makríl hafa landað afla til vinnslu hjá fleiri fiskvinnslufyrirtækjum en þeim hefðbundnu uppsjávarvinnslum sem áður sátu einar að makrílvinnslu. Þessi staðreynd hefur orðið til þess að fleiri byggðarlög, fiskvinnslufólk, fiskvinnslu- og þjónustufyrirtæki hafa notið þeirra verðmætasköpunar sem fylgir makrílnum. Fjölgun vinnslustöðva hefur sérstakleg  komið skólafólki í sjávarbyggðum vel en það hefur unnið nótt sem nýtan dag og búið sér í haginn fyrir framtíðina og aflað mikilla tekna. Þrátt fyrir deilu og niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis um að makrílkvóta ætti eingöngu að úthluta á uppsjávarskip þá verður ekki litið fram hjá þeirri staðreynd að þessi þróun veiða og vinnslu hefur skapað meiri velsæld, fleiri tækifæri og minna atvinnuleysi í sjávarbyggðum víða um land sem áður byggðu á hefðbundinni bolfiskvinnslu. Það er því mikilvægt að við hugum að almennum hagsmunum og náum sátt í greininni um veiðar og nýtingu makrílsins sem komi sem flestum til góða. Í því sambandi minni ég á að Norðmenn leggja á það áherslu að veiða sem mest af makríl en hann hefur mikil áhrif á lífríkið í sjónum og stofninn afar stór um þessar mundir. Við höfum kosið stöðuleika og standa á sannfæringu okkar um sjálfbærar veiðar.

 

Aukið verðmæti.

Sú hugsun sækir á mig hvort við náum ekki sátt um áframhaldandi veiðar línu og togbáta verði samkvæmt úthlutun hvers árs og því ekki um að ræða kvótasetningu á hvern bát til framtíðar eins og stóru uppsjávarskipin. Ólympískar veiðar línubáta eða ríflegur pottur samkvæmt nánari útfærslu á ákveðnum veiðisvæðum og fjölda báta yfir það tímabil sem makríllin er í bestum holdum og verðmætið mest frá miðjum júlí til loka september er þjóðhagslega hagkvæmt og hleypir miklu lífi í fleiri fyrirtæki og sjávarbyggðir með margfeldisáhrifum og minna atvinnuleysi. Ég vil skoða þessa hugmynd á þeirri forsendu að hagsmunir fleiri eru í húfi og á einhverjum stað verður hagræðing í sjávarútvegi að hafa endimörk, en 86% úthlutaðs kvóta er hjá 5 stærstu útgerðum landsins. Flóra smærri, meðal- og stórra fyrirtækja skapar jafnvægi í útveginum eins og annarstaðar í atvinnulífinu.

 

Umburðarlyndi.

Sjávarútvegurinn er undirstöðuatvinnugrein í samfélaginu. Í skjóli öflugra fyrirtækja í sjávarútvegi vex og dafnar nýsköpun sem skapað hefur fjölda nýrra vel launaðra starfa og aukið framleiðni greinarinnar. Við verðum að halda áfram á þeirri braut og landvinnslan fylgi í kjölfarið og bjóði líka betur launuð störf. Það er því augljóst að jafn mikilvæg grein eins og uppsjávarveiðin er og stór í sniðum á öllum íslenskum mælikvörðum hafi umburðarlyndi til að sem flestir geti notið þess happafengs  sem makríllinn er og færir þjóðinni mikil verðmæti með heimsókn sinni að ströndum landsins og þeir litlu og stóru geti unað hag sínum vel í sátt og samlyndi. Mér finnst vert að skoða það.

 

Ásmundur Friðriksson alþingismaður

 

Nýjustu fréttir

Slá ekki slöku við
Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins
Útgáfutónleikar Vina og vandamanna: Eyjalögin lifa áfram
Sjolag.is í stað veður- og ölduspár á netinu
ÞESAL – Partýljón, teiknimyndir, djamm og djús
Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu
Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.