Ef ég bara þyrði...
15. október, 2014

Ég elska September. Sko plötuna hans Bergsveins. Og þó ég syngi kannski ekki vel, þá elska ég nú samt að syngja með. Af öllum lífs og sálar kröftum. Ég elska að setja Pink í botn og dansa með –  eins og engin sé að horfa. En ég lít samt alltaf í kringum mig til að athuga hvort ég sjái einhvern. Þú veist, að horfa. Mér þykir nefnilega enn pínu vont að vera álitin kjánaleg.

Ég er dáldið feimin og er bara ekki alveg komin á þann stað að vera sama um hvað fólki finnst. Eina ástæðan fyrir því að ég fæ mér í glas er sú að það losar um hömlur og hleypir ófeimnu útgáfunni af sjálfri mér fram. En svona í seinni tíð er mig samt farið að gruna að fólk pæli minna í mér en ég ætla. Það gæti jafnvel, hugsanlega, kannski verið að fólk ætti bara nóg með sjálft sig og hafi jafnvel bara ekki tíma, orku eða nenning í að vera endalaust að spá í mér og því sem ég er að gera.

Við pælum nefnilega ofboðslega mikið í því hvað öðrum finnst, sérstaklega ef við teljum okkur ekki standa undir eigin væntingum.  Við tökum flottustu og eftirtektarverðustu eiginleikana hjá öðrum og miðum okkur við það. Niðurstaðan er yfirleitt sú sama; hversu meingölluð og ótrúlega ófullkomin við erum. Allir þeir eiginleikar sem við dáumst að í fari annarra – þú veist, hvað hún Sigga er ótrúlega falleg (með flottan kropp og hvað hún er einstaklega dugleg í ræktinni),  hvað hann Jón er hrikalega rómantískur (hann er alltaf að gefa konunni sinni eitthvað og-veistu-bara-hvað, hann kveikir meira að segja á kertunum fyrir hana) og hvað hún Gunna er nú dugleg í eldhúsinu (ómægod, það er ekki nóg með það að hún eldi sjúklega góðan mat, þetta er allt saman glútleinlaust) – þetta er einfaldlega eins og toppurinn á ísjakanum. Við viljum nefnilega svo gjarnan að fólk sjái bara sparihliðarnar okkar – þær hliðar sem við viljum að aðrir dáist að og dásami okkur fyrir.

Við eigum öll svo marga dásamlega, skemmtilega og jafnvel eftirsóknaverða eiginleika. En við eigum líka allt hitt sem við reynum eftir fremsta megni að fela fyrir öðrum því við viljum ekki vera talin  minniháttar ef það sést glitta í mannlegu brestina okkar. Í raunverulegu manneskjuna sem er bak við grímuna sem við setjum upp dags daglega til að öðlast aðdáun annara. Það eru samt allir með einhvern farangur úr fortíðinni. Eitthvað sem við hræðumst, skömmumst okkar fyrir eða erum óörugg með. Og það er einmitt þessi farangur sem kemur í veg fyrir að við þorum að fleygja öllum dásamlegu eiginleikunum upp á yfirborðið, láta reyna á hæfileikana og gera grín af göllunum okkar og öllum mannlegu brestunum.

Þessi ótti og óöryggi  gera það að verkum að við verðum sár og reið þegar einhver gagnrýnir okkur. Og þá er nú miklu betra að vera bara í þægindakassanum – þar þarf maður allavega ekkert að reyna neitt nýtt eða óttast hvað aðrir hafi um mann að segja.

En hvernig væri lífið öðruvísi ef maður væri ekki hræddur, óöruggur eða velta sér upp úr áliti annarra? Ég er búin að vera að pæla dáldið í þessu – hvernig mitt líf væri öðruvísi ef ég þyrði bara að láta vaða og hætta að spá í „hvað ef“. Og ég velti líka fyrir mér hverju ég fengi áorkað ef ég væri algerlega laus við óttann um höfnun eða við að mistakast.

Þetta er dáldið mögnuð spurning, því ég er farin að sjá það að möguleikarnir mínir eru nánast takmarkalausir. Ég er alltaf að sjá það betur og betur að það eina sem stoppar mig er óöryggið mitt og efinn um hver ég haldi nú eiginlega að ég sé, að ætla mér þetta eða hitt. En ég er líka farin að sjá það að fólk kann betur við mannlegu, dásamlegu og kjánalegu skvísuna sem ég er, heldur en fullkomnu og gallalausu útgáfuna sem ég reyndi svo lengi að verða. Það sjá flestir nokkuð auðveldlega í gegnum allt svoleiðis fals.

En ef ég væri hins vegar með fullt hús sjálfstrausts, væri fullgildur meðlimur í „mér-er-alveg-sama-þótt-allir-séu-að-hlægja-að-mér“ félaginu og væri ekki hrædd við að vera álitin ófullkomin,  þá væri ég löngu farin með rauðvínshandbókina mína til útgefanda (hún er nefnlega alveg hrikalega flott).  Ég væri búin að senda einhverjum hjá Huffington Post bréf til að athuga af hverju í ósköpunum þeir væru ekki farnir að birta pistlana mína og ég væri líklega í öllum skólum að halda fyrirlestur um hvaða afleiðingar hausarusl og tilfinningadrasl hefur á líkamlega og andlega heilsu. Og um það hversu dásamleg samskipti geta verið þegar við þorum að stíga út fyrir óttann. Ég þyrfti þá heldur ekki að fá mér bjór (eða tvo) til að losa um hömlur til að verða (kannski bara aðeins pínulítið) skemmtilegri.  Ég gæfi mér þá einfaldlega leyfi til vera sá kjáni sem ég raunverulega er.

Ef ég hefði hugrekkið með mér í liði leyfði ég hjartanu oftar að ráða för. Þá færi ég á þessi deit sem mér hafa verið boðin. Ég myndi þá líka jafnvel, hugsanlega, kannski þora að verða hrifin aftur. Ég  myndi hoppa af kæti, garga af gleði og syngja úr mér lungun næst þegar hundurinn færi með mig í göngu suður á eyju – án þess að líta í kringum mig og athuga hvort það væri einhver að horfa. Og ég myndi klárlega gera mitt allra besta til að fá Bergsvein til að vera með tónleika á Háaloftinu.

Eins og ég sé þetta þá hef ég núna um tvennt að velja; að tækla óttann og segja skilið við ef-ég-bara-hefði hugsanir, eða ég get haldið áfram að leyfa óttanum að ráða för og setið uppi með fjandans eftirsjána. 

Eins og spekingarnir segja, að þá eru það ekki hlutirnir sem við gerum sem við sjáum eftir, heldur það sem við gerðum ekki.

Svo, Beggi…  hvað segir þú annars um tónleika í Eyjum í vetur?

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst