Stórkostlega gallað kjánaprik
31. október, 2014

Hún er vond sú tilfinning þegar einhver sér óvart hluta af manni sem maður hefur eftir fremsta megni reynt að fela fyrir öðrum. Ég hef næstum misst af Herjólfi þrisvar (get eingöngu skrifað það á kjánaskap og kæruleysi) og hef einu sinni meira að segja tekist það. Klárlega ekki það versta sem ég hef gert, en samt eitthvað sem ég skammast mín smá fyrir. Ég hef hins vegar staðið úti á miðri umferðargötu, á háannartíma og gargað úr mér lifur og lungu og látið allra ljótustu orðin sem ég kunni falla á manninn sem ég elskaði, fyrir framan átta ára gamlan son minn. Ég týndi fimm ára syni mínum í Smáralindinni og fór eitt sinn á tjúttið í Reykjavík á meðan sami sonur, sem þá var þriggja ára gamall, var að jafna sig eftir hálskirtlaaðgerð hjá frænku minni. Allt hlutir sem ég hefði svo gjarnan vilja sleppa við að hafa gert eða allavega verið til í að enginn hefði vitað af. Ef nú bara ég hefði verið skynsamari, betri eða ábyrgðarfyllri…

Það verður öllum á og það gera allir mistök. Með þeim orðum fyrirgaf yngsti sonur minn mér eitt af ofangreindum atvikum. Þegar okkur verður á og við gerum hluti sem við erum ekki stolt af eða hreint og beint skömmumst okkar fyrir, þá eru fyrstu viðbrögðin að reyna að fela það fyrir öðrum. Vona heitt og innilega að engin komist að þessu. Af hverju? Jú, af því að við hræðumst svo hrikalega hneykslun, fordæmingu og setningar eins og „…sko, svona gerir fólk bara ekki“.

Ég vil svo gjarnan vera álitin góð manneskja því ég tel mig í flestum tilfellum vera það. En ég geri mín glappaskot, ég geri mistök og mér verður á. Ég geri og segi stundum hluti sem vildi oft óska að ég hefði sleppt.  Ég er hins vegar svo óendanlega heppin að eiga góða vini og fjölskyldu að sem minna mig stöðugt á hversu mikils virði ég sé þeim, þrátt fyrir kjánaskap og heimskupör. Nánast allir þeir sem ég vel að hafa í kringum mig, viðurkenna fúslega samskonar mannlega bresti og svipaðar vitleysur – jafnvel stundum eitthvað töluvert verra.

Guð blessi dásamlega vini og yndislega fjölskyldu, því svoleiðis orð gera það að verkum að ég get fyrirgefið sjálfri mér heimskupörin og hætt að brjóta mig niður fyrir kjánaskapinn, sleppt skömminni og fundið kjarkinn til vera ég sjálf.  Það er nefnilega svo átakanlega sár tilfinning, að finnast maður vera valda öðrum vonbrigðum eða mistakast. Svo hrikalega vont að maður reynir eftir bestu getu að fela það sem gert var, í það minnsta reynir maður að gera sem minnst úr hlutunum.

Í samfélagi sem gefur ekki sveigjanleika í mannlega bresti og mistök, þá setjum við upp flotta og fullkomna grímu  til að sannfæra allt og alla um hversu gallalaus við erum. Við búum í samfélagi þar sem við þorum ekki að sýna okkar raunverulega sjálf og gera það sem okkur langar að  ótta við áliti annarra.

En af hverju? Af hverju erum við svona berskjölduð fyrir neikvæðu áliti annarra?

Af því að það erum við sjálf sem erum þetta neikvæða álit og við vitum alveg upp á okkur sökina í gagnrýni og dómhörku (þrátt góðan vilja) og erum þar af leiðandi afar viðkvæm fyrir því sjálf. Það erum við sjálf sem jöplum á nýjustu hneykslissögunum eins og sælgæti og það erum við sjálf sem höfum stöðugar skoðanir á útliti og hegðun annarra. Það er því kannski engin furða að fólk sé stöðugt að reyna að fegra sig í augum annarra, hvort sem það er með að setja upp hina fullkomnu grímu eða með því að nota einhver „öpp“.

Kjaftasögur og „útlitsdýrkandi lífsstílsvefir“  væru ekki til ef við værum ekki tilbúin að hlusta. Framboðið er einungis í samræmi við eftirspurn og það erum við sjálf sem veitum þessa eftispurn með því að vera stöðugt að taka þátt í gagnrýni og bjóða fram skoðunum  á hegðun, útliti og framkomu samferðarmanna okkar.

Sannleikurinn er einfaldlega sá að við þorum oft ekki að horfast í augu við alla mannlegu brestina okkar, heimskupörin og mistökin sem við gerum – eins og allir hinir. Við þorum ekki að taka áhættuna og taka niður grímuna og treysta því að fólki líki við okkur eins og við raunverulega erum. Þess í stað sýnum við heiminum tilgerðarlega, gallalausa og afar yfirborðskennda útgáfu af okkur sjálfum og gerum þær kröfur að fólk hagi sér óaðfinnanlega, geri aldrei mistök og verði aldrei á. Við hendum  grjóthnullungum úr fallegu glerhúsunum okkar í stórum stíl.

Ég dáist endalaust að þeim einstaklingum sem hafa kjarkinn og þorið til að kasta af sér „grímunni“, vera það sjálft og segja slitið við álit og skoðanir samfélagsins. Það er eitt stærsta og mesta frelsi sem hægt er að upplifa og þessir einstaklingar fá líka að sjá demantana bak við grímurnar sem við felum okkur bak við.

Við skrift þessa pistla hefur ég fengið ómældan styrk, kjark og þor til þess að losa mig sífellt meira undan skoðunum og áliti annarra. Það hefur gefið mér skemmtileg samtöl við marga áhugaverða einstaklinga, mörg einlæg og falleg orð og ótal spennandi tækifæri. Ég veit líka að þegar ég opinbera heimskupör mín og kjánaskap, fæ ég slíkt hið sama frá öðrum.  Og það hefur fært mér eitt það dýrmætasta sem lífið getur veitt; raunveruleg og innileg samskipti og tækifæri til að kynnast öðrum sem og sjálfri mér enn betur.   

Megi dagurinn í dag gefa þér sömu tækifæri, með þeirri von um að þú finnir kjarkinn þinn til að treysta fólkinu þínu fyrir sjálfum þér og einhverju af hausaruslinu þínu. Megi dagurinn í dag einnig gefa þér skilning og umburðarlyndi fyrir heimskupörum vina þinna og ættingja (og það er örugglega af nógu að taka) og að þú hlustir á sögu þeirra af forvitni í stað gagnrýni. Megi dagurinn í dag gefa þér að lokum fallegar, raunverulegar og innilegar samverustundir og vináttu við þína nánustu.

Með ást, gleði og taumlausri hamingju frá meingölluðu kjánapriki úr Vestmannaeyjum.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst