Fyrst aðeins að grein minni í 1. maí blaði Eyjalistans.
Þar m.a. kemur fram að sé horft til næstu 30 ára með Landeyjahöfn eins og hún er í dag, þá muni hún að öllum líkindum vera búin að kosta ríkið 50-60 milljarða og samt með sömu og/eða svipuð vandamál og í dag.
Varanleg lausn hins vegar á samgöngum okkar eyjamanna myndi hins vegar ekki kosta okkur nema liðlega 30 milljarða, og því til viðbótar má bæta við, að augljóslega mundi sparast miklir fjármunir í framtíðinni með því að geta tekið og endurnýjar allar lagnir milli lands og eyja í gegnum göng.
Ég las grein fyrir nokkru, skrifaða af dæmigerðum landkrabba hér í eyjum, þar sem hann gerði frekar lítið úr vinnu þeirra sem unnið hafa að undanförnu við að dýpka í Landeyjahöfn og tók eftir því að um svipað leyti kom fram tilkynning um að það væri ætlunin að reyna að fá öflugri dæluskip, til þess að vinna verkið hraðar og betur, en frétti ég síðan af því, að haft var samband við erlenda fyrirtækið sem að, á sínum tíma, bauð á móti Björgun í útboði varðandi sanddælingu úr Landeyjahöfn.
Svörin vöktu sérstaka athygli mína, því að í svari hins erlenda fyrirtækis kom fram, að það fyrirtæki hefði engan áhuga að koma frekar að þessari sanddælingu í Landeyjahöfn, vegna þess að þar væri verið að vinna við aðstæður, sem væru ekki bara fáránlegar heldur líka hættulegar, því að það væri einfaldlega þannig að sanddælingar með sanddæluskipum, væru fyrst og fremst unnar við aðstæðum þar sem boðið væri upp á ládauðann sjó og það að bjóða mönnum upp á að vinna upp í 2-3 metra ölduhæð, væri algjörlega galið og ekki bjóðandi upp á.
Þannig að um leið og ég fagna því, eins og allir eyjamenn, að Landeyjahöfn sé loksins opnuð og að veðurspá næstu vikuna sé afar hagstæð, þá er ágætt að vita það hér með að þær aðstæður sem við búum núna við í Landeyjahöfn er eitthvað sem við munum þurfa að búa við, að óbreyttu, í framtíðinni. Ég ætla því að enda þetta með því að segja:
HÚRRA FYRIR HETJUM LANDEYJAHAFNAR
eða þ.e.a.s. áhöfnunum á sanddæluskipunum, sem vinna á skipum sem eru löngu komin á tíma og við aðstæður, sem að samkv. því sem hér kemur fram, engir aðrir myndu láta bjóða sér upp á.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.