Þú þarft að hafa yfirsýnina
29. október, 2015

Nú hefur verið ákveðið að smíða nýja ferju sem þjóna á samgöngum milli Eyja og Landeyjahafnar. Smíðanefndin segist vera að leggja loka hönd á að hanna skipið sem á að geta siglt í 355 daga á ári í Landeyjahöfn. Reyndar bárust fregnir í febrúar af því að hönnunin væri á lokastigi en síðan kom á daginn nú í september að lengja þyrfti umrædda ferju.

Svo að ráðherra og almenningur átti sig á ferlinu í málinu skal reynt að útskýra það hér, eins og það blasir við undirrituðum. Það gleymist nefnilega stundum að fá yfirsýn í stór mál.

Verkefni smíðanefndar.

Smíðanefnd er skipuð af íslenska ríkinu. Hana skipa eftirfarandi sérfræðingar:

Andrés Þorsteinn Sigurðsson, hafnsögumaður hjá Vestmannaeyjahöfn,
Friðfinnur Skaftason, vélaverkfræðingur hjá innanríkisráðuneytinu – formaður hópsins,
Hjörtur Emilsson, skipatæknifræðingur og framkvæmdastjóri NAVIS  
Sigurður Áss Grétarsson, verkfræðingur og framkvæmdastjóri siglingasviðs Vegagerðarinnar.

Sævar M. Birgisson, skipaverkfræðingur sagði sig úr nefndinni.

Það sem að umrædd nefnd ber að gera samkvæmt skipunarbréfi sínu er að hanna skip, sem sigla á í Landeyjahöfn með sem minnstum frátöfum. Þessi nefnd á ekki að huga að neinu öðru. Starfsmaður smíðanefndarinnar Jóhannes Jóhannesson, fullyrðir að ferjan muni geta siglt í Landeyjahöfn í allt að 3,5 metra kenniöldu (sem er ölduhæðin sem duflið sýnir – sem flestir Vestmannaeyingar skoða reglulega).

 

Hvar liggur ábyrgðin?

Vandinn er hinsvegar sá að enginn úr smíðanefndinni mun verða uppí brú á nýju skipi til að taka þar ákvörðun á degi hverjum hvort fært er í 2,5, 3 eða 3,5 metra hárri kenniöldu. Það þurfa skipstjórarnir að ákveða. Og þeir hafa tjáð sig með skýrum hætti hvað þeir telja vandamálið sé. Þeir telja stærsta vandmálið vera aðkoman að höfninni. Hvað ef skipstjóranir treysta sér ekki að sigla skipinu inn nema við 3 metra ölduhæð eða minna?

Jú, þá þarf að taka stefnuna á Þorlákshöfn – með 30 – 40 kojur efst í skipinu í 2 stórum rýmum. Spennandi?

 

Yfirsýn yfir verkið

Þá komum við að þeim aðilum sem þurfa að hafa yfirsýn yfir allt verkið í heild. Eins og áður sagði þá er verkefni smíðanefndar afmarkað og miðast eingöngu við að hanna og smíða skip. Of lítið skip (samkvæmt greiningu á flutningsþörf, sem unnin var af ríkinu ) sem passar með skásta móti inn í höfn sem ekki er búið að klára.  Á fundi smíðanefndarinnar með kjörnum fulltrúum í Eyjum kom fram að rannsaka þyrfti aðstæður við höfnina mun betur áður en ráðist er í lagfæringar á henni. 5-7 ár voru nefnd í því samhengi.

Hverjir eru það sem þurfa og eiga að hafa yfirsýn yfir verkefnið í heild?

Æðsti embættismaðurinn hlýtur að vera ráðherra málaflokksins. Ólöf Nordal. Eðlilegt er að hún sé tvístígandi í málinu. En sérfræðingar hafa talið henni trú um að með nýju skipi sem passar í höfnina minnki frátafirnar verulega og verði 10 heilir dagar á ári og 30 dagar sem einhver röskun verður.

En fleiri hljóta að þurfa slíka yfirsýn. Okkar kjörnu fullrúar sem sæti eiga í bæjarstjórn. Þeir hafa lagt allt sitt traust á að nýtt skip muni leysa stærsta vandann. Þar leggja þau væntanlega allt sitt traust á sömu aðila og ráðherrann. Fulltrúar okkar eiga reyndar að endurspegla vilja bæjarbúa og því væri ágætt að þeir myndu styðjast við þá einu könnun sem búið er að gera meðal bæjabúa um málið – á meðan enn er beðið eftir vönduðu skoðanakönnuninni sem bæjarráð samþykkti að gera í byrjun árs.

 

Ófært er til Landeyjahafnar, miklir straumar og brot við höfnina.

Þegar þessi grein er rituð kom eftirfarandi skeyti frá forsvarsmönnum Herjólfs:

„Ófært er til Landeyjahafnar, miklir straumar og brot við höfnina. Herjólfur siglir til Þorlákshafnar amk fyrri ferð í dag fimmtudag, 22.10.15“

Þegar þetta skeyti var sent – var ölduhæðin samkvæmt duflinu 2,4 m.

Því er spurt – verða þessi brot og þessir straumar úr sögunni bara með því að fá nýtt skip?

 

Traustið á sérfræðingana.

Eyjar.net mældi í febrúar s.l traust Eyjamanna á ráðuneyti samgöngumála, Vegagerðina og bæjarstjórn. Einn af hverjum tíu íbúum bæjarins treysta ráðuneytinu í þessum málum. 13,5% treysta Vegagerðinni og helmingur bæjarbúa treystir bæjarstjórn til að taka ákvarðanir um framtíðarskipulag sjósamgangna milli lands og Eyja. Það verður að segjast eins og er að traustið er nánast farið í tilfelli ríkisins og undirstofnunar. Ekkert hefur hinsvegar breyst í stefnu stjórnvalda.

 

Tillaga að lausn

Krafa okkar hlýtur að vera að höfnin verði kláruð. Ef ekki er hægt að laga Landeyjahöfn þannig að hún verði fær skipum stærsta hluta ársins er ég með tillögu. Menn sem að steypa sér í þessa umræðu er oft legið á hálsi að benda aldrei á lausnir. Því varpa ég fram tillögu að lausn sem fellst í því að smíðað verði (eða keypt notað) skip sem tekur 1000 farþega, tekur yfir 100 ökutæki og með á annað hundrað kojur. Ákveðið verði að halda Landeyjahöfn opinni 7 mánuði á ári. Í 5 mánuði komi ferjan til með að ganga í Þorlákshöfn. Þá vitum við Eyjamenn og landsmenn allir nokkurn veginn að hverju við göngum. Ekki þetta eilífa limbó um hvert verði siglt á morgun, eða um næstu helgi, o.s.fr.v. Þá erum við með mjög öflugt ferðamannatímabil hér frá miðjum mars og allt fram í miðjan október.  

 

Að lokum

Kæri ráðherra, hefur þú kynnt þér allar hliðar málsins? Hefur þú rætt við þá skipstjórnarmenn sem siglt hafa í Landeyjahöfn?

Er ekki rétt að fá nýja aðila að málinu til að meta markmið og reynslu þeirra sem stýrt hafa málum er varðar hönnun Landeyjarhafnar og nýrrar ferju?

Vill ráðherrann ekki skoða þann möguleika að leigja grunnrist skip sem flytur allt að 100 bíla og getur siglt til Þorlákshafnar 4-5 mánuði á ári?

Finnst ráðherranum ekki rétt að endurmeta allt verkefnið miðað við reynsluna – áður en lagt verður í milljarðakostnað við smíði nýrrar ferju sem líklega getur ekki staðið undir þeim væntingum sem til hennar eru gerðar um að sigla 355 daga í Landeyjarhöfn og í heildina truflist aðeins ferlið í 30 daga á ári?

Stundum þarf að skoða fleiri hliðar mála til að fá betri yfirsýn. Það er þitt hlutverk, kæra Ólöf.

 

Virðingarfyllst.

Tryggvi Már Sæmundsson

Ritstjóri Eyjar.net og íbúi í Vestmannaeyjum

 

 

Spurningarnar sem óskað er svara við:
  1. Vill ráðherrann ekki skoða þann möguleika að leigja hentugt skip sem flytur allt að 100 bíla og getur siglt með góðu móti til Þorlákshafnar 4-5 mánuði á ári?
  2. Finnst ráðherranum ekki rétt að endurmeta allt verkefnið miðað við reynsluna – áður en lagt verður í milljarðakostnað við smíði nýrrar ferju sem líklega getur ekki staðið undir þeim væntingum sem til hennar eru gerðar um að sigla 355 daga í Landeyjahöfn og í heildina truflist aðeins ferlið í 30 daga á ári?
  3. Finnst ráðherra ekki athugandi að fá nýja aðila að málinu til að meta markmið og reynslu þeirra sem stýrt hafa málum er varðar hönnun Landeyjarhafnar og nýrrar ferju?
  4. Hefur ráðherra rætt við Sævar M. Birgisson, skipaverkfræðing um ástæður þess að hann sagði sig úr smíðanefndinni?
  5. Mun ráðherra ræða við þá skipstjórnarmenn sem notað hafa Landeyjahöfn og munu bera ábyrgð í framtíðinni á siglingum þangað?

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.