Líflegt í innsiglingunni

�?að var mikið líf í innsiglingunni til Eyja í dag. Greinilega mikið æti í sjónum sem dró að sér sjófuglana og seli, og einnig mannfólkið. Halldór Benedikt var mættur með myndavélina. (meira…)

Enn einn risasöngleikur hjá LV

Eftir velheppnaða uppsetningu á Dýrunum í Hálsaskógi er Leikfélag Vestmannaeyja nú að fara á fullt við að undirbúa næstu sýningu. Sú verður ekki af minni gerðinni því ákveðið hefur verið að ráðast í að setja upp hin geysivinsæla söngleik Litlu Hryllingsbúðina. �??Við ætlum að setjum upp enn einn risasöngleikinn�?? sögðu þær Unnur Guðgeirsdóttir, formaður Leikfélags […]

Vörur læstar inni og reikningar ekki greiddir

Rekstri sveitamarkaðsins á Hvolsvelli, sem hefur verið starfræktur í go�?mlu bro�?ggunum á staðnum hefur verið hætt. Eftir því sem heimildir Sunnlenska segja eiga allnokkrir aðilar vo�?rur í húsnæðinu og aðrir ekki fengið greitt fyrir sína vo�?ru. Sem dæmi sendi handverkssali inn vo�?rur til útso�?lu í bragganum í fyrravor fyrir um 750 þúsund krónur, en fékk […]

Hýsir mót norrænna systkinasamtaka

Í sumar fyrirhugar KFUM og K í Vestmannaeyjum að hýsa norrænt mót systkinasamtaka félagsins í norrænum löndum. Af því tilefni óskaði félagið eftir stuðningi Vestmannaeyjabæjar í verkefnið, sambærilegan og veittur er ÍBV íþróttafélagi á knattspyrnumótum þess félags. Er um að ræða aðgengi að sundlaug og afnot af skólum til gistingar. Bæjarráð tók jákvætt á erindinu […]

Aukin aðstaða á Vigtartorgi

Vestmannaeyjabær hefur nú til skoðunar að koma upp sölubásum á Vigtartorginu. Stefnt er að því að að í vor verði komnir upp 3 til 5 sölubásar sem áhugasamir geti leigt til lengri eð skemmri tíma. Sérstaklega er til athugunar að búa básana þannig að auðvelt sé að flytja þá til og nýta í tengslum við […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.