Aukin aðstaða á Vigtartorgi
Vestmannaeyjabær hefur nú til skoðunar að koma upp sölubásum á Vigtartorginu. Stefnt er að því að að í vor verði komnir upp 3 til 5 sölubásar sem áhugasamir geti leigt til lengri eð skemmri tíma. Sérstaklega er til athugunar að búa básana þannig að auðvelt sé að flytja þá til og nýta í tengslum við viðburði víða í bænum. �?að er því aldrei að vita nema að fyrir næstu jól verði hægt að kaupa ristaðar möndlur og handverk í sölubásum í miðbænum. �?að er einnig vitað til þess að áhugasamir aðilar í ferðaþjónustu hafi hug á að auka framboð á vörum og þjónustu við bæði heimamenn og gesti þeirra. Áhugasömum er bent á að hafa samband við tæknideild Vestmannaeyja ef óskað er eftir frekari upplýsingum.
(fréttin birtist í fréttabréfi Vestmannaeyjabæjar)

Nýjustu fréttir

Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.