Agnar Smári víttur

Aga­nefnd HSÍ hef­ur ávítt Agn­ar Smára Jóns­son, leik­mann ÍBV, vegna skrifa hans á Twitter í síðustu viku. �?ar með er ljóst að Agn­ar Smári slepp­ur við sekt og leik­bann vegna máls­ins. Um­mæl­in sem hann var ávítt­ur fyr­ir komu í kjöl­far bikarleiks Stjörn­unn­ar og FH þar sem Agn­ari Smára þótti lítið koma til dóm­ara leiks­ins: �??Nú […]

Hollenskur leikmaður á reynslu

ÍBV hefur fengið til sín á reynslu hollenska leikmanninn Mees Siers. Hann er 27 ára gamall og á að baki landsleiki með yngri landsliðum Hollands. Mees getur bæði leikið í stöðu bakvarðar sem og á miðsvæðinu, en er aðallega hugsaður sem miðjumaður hjá ÍBV. Mees á að baki yfir 100 leiki í hollensku 1. deildinni […]

Í tilefni 100 ára frá því konur fengu kosningarétt

Sagnheimar, byggðasafn, ætlar að minnast þess á margvíslegan hátt að í ár eru liðin 100 ár frá því að konur fengu kosningarétt hér á landi. Hafinn er undirbúningur á nýrri íþróttasýningu þar sem Eyjakonur í íþróttum verða nær eingöngu viðfangsefnið. Aldrei verður hægt að gera öllum skil – en nú kalla ég eftir tillögum ykkar […]

Hörkuleikir í undanúrslitum Coca Cola bikarsins

Í hádeginu var dregið í undanúrslitum Coca Cola bikars karla og kvenna í handbolta en bikarúrslitahelgin fer fram í Laugardalshöllinni 26. til 28. febrúar. ÍBV átti bæði kvenna og karlalið í pottinum. Íslandsmeistarar ÍBV drógust gegn Bikarmeisturum Hauka. Stelpurnar drógust gegn Gróttu en Grótta situr á toppi Olísdeildar kvenna. Um hörkuleiki er að ræða hjá […]

Leiknum frestað hjá stelpunum

Stelpurnar áttu að taka á móti Haukum í dag í Olísdeild kvenna. Leikurinn átti að fara fram síðast liðinn laugardag en var frestað vegna veðurs og hefur nú verið frestað á nýjan leik þar sem Haukastúlkur komust ekki til Eyja. Leikurinn mun fara fram á morgun klukkan 19:30 (meira…)

Skilafrestur í ljósmyndasakeppni framlengdur

Við viljum vekja athygli á því að ákveðið hefur verið að lengja frest til að skila inn myndum til föstudagsins 27. febrúar. Ferðamálasamtökin eru að leita eftir fallegum ljósmyndum frá náttúru og mannlífi Eyjanna til að birta á heimasíðu samtakanna. Vegleg verðlaun í boði fyrir bestu myndirnar. Nánari upplýsingar má nálgast hjá Páli Marvin í […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.