Valdimar á Háaloftinu

Hljómsveitin Valdimar fór af stað í Íslandstúr í mars 2015 til að fylgja eftir nýútkominni plötu þeirra ‘Batnar útsýnið’. Einnig kemur hljómsveitin til með að flytja sín þekktustu lög. Hljómsveitin mun enda tónleikaferðalagið í Vestmannaeyjum þann 27. mars. Hljómsveitin Valdimar var stofnuð árið 2009 þegar Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson byrjuðu að semja lög heima […]
�?víst hvenær Landeyjahöfn opnar

Í tilkynningu frá Sigurði Áss forstöðumanni siglingarsviðs Vegagerðarinnar hefst dýpkun í Landeyjahöfn um leið og veður gefur og útlit er fyrir að unnt verði að dýpka það mikið að nægjanlegt dýpi næst fyrir Herjólf. Hann tekur fram að tíminn sem það taki að dýpka fyrir Herjólf sé mjög háður veðri og sé því erfitt að […]
Róleg vika hjá Lögregluni

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og fá útköll á öldurhúsin. Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni en við leit á karlmanni á fertugsaldri fundust smáræði af kannabisefnum. Viðurkenndi maðurinn að vera eigandi efnisins og hafa ætlað þau til eigin nota. […]
Jón Gunnlaugur hættir eftir tímabilið

Jón Gunnlaugur Viggósson annar þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍBV mun ekki halda áfram með liðið á næstu leiktíð. Jón Gunnlaugur hefur þjálfað ÍBV síðastliðin tvö ár ásamt Svavari Vignissyni. Jón Gunnlaugur hefur ákveðið að snúa sér aftur að þjálfun í karlahandboltanum en hann þjálfaði þar í sex ár áður en hann snéri sér að kvennaboltanum […]
Erfitt gengi ÍBV í síðustu leikjum

Eyjamenn lögðu upp í mikið ferðalag síðastliðna helgi þegar þeir mættu Akureyri á laugardaginn. Fyrir leikinn mátti búast við hörkuleik en liðin eru í 6. og 7. sæti Olísdeildar karla. ÍBV mættu ekki til leiks á fyrstu mínútunum og skotnýtingin ekki góð. Akureyri náði mest fimm marka forystu í fyrrihálfeik en ÍBV náði þá góðum […]