Valdimar á Háaloftinu
Hljómsveitin Valdimar fór af stað í Íslandstúr í mars 2015 til að fylgja eftir nýútkominni plötu þeirra ‘Batnar útsýnið’. Einnig kemur hljómsveitin til með að flytja sín þekktustu lög. Hljómsveitin mun enda tónleikaferðalagið í Vestmannaeyjum þann 27. mars.
Hljómsveitin Valdimar var stofnuð árið 2009 þegar Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson byrjuðu að semja lög heima hjá Ásgeiri. Fljótlega varð til 6 manna hljómsveit sem sló óvænt í gegn bæði hjá almenningi og gagnrýnendum. Fyrstu 2 plötur sveitarinnar nutu gríðarlegrar velgengni og hefur nýjasta plata þeirra ‘Batnar útsýnið’ þegar fengið frábæra dóma og trónað í efstu sætum vinsældarlistanna.
�?egar hafa 2 lög af plötunni ‘Batnar útsýnið’ og ‘Ryðgaður dans’ náð toppsætinu á Rás 2 vinsældarlistanum.
Tónlistin þeirra byggist upp á mikilli dýnamík, allt frá rólegum melódíum upp í drífandi, orkumikla og epíska kafla þar sem hljómsveitin spilar á fullu blasti. �?etta gerir lifandi flutning þeirra að ógleymanlegri upplifun. Tónlistarstefnu þeirra er best að lýsa sem electro indie blöndu með rætur í Americana tónlist, þó svo aðdáendum finnist það einfaldlega ekki skipta máli að skilgreina tónlist sveitarinnar.

Nýjustu fréttir

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.