Herjólfur kveður

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum morgun að fara í útboð á nýrri Vestmannaeyjaferju þetta kemur fram á ruv.is í dag. Ekki liggur fyrir hver kostnaður við smíði ferjunnar er, samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum segir þetta óvænt en gleðileg tíðindi. Eyjamenn hafa beðið eftir nýrri ferju í nokkurn tíma. Fyrir sjö árum var […]

Fyrrverandi starfsmaður olli tjóni

Lögreglan hafði í töluverðu að snúast í liðinni viku vegna hinna ýmsu mála sem upp komu án þess þó að um alvarleg mál hafi verið að ræða. Skemmtanahald helgarinanr fór þokkalega fram en eitthvað var þó um pústra án þess þó að kærur liggja fyrir. �?á var eitthvað um kvartanir vegna hávaða frá heimahúsum þar […]

Brimnes og Dans á Rósum verða á �?jóðhátíð líkt og undanfarin ár

Eyjahljómsveitirnar Dans á Rósum og Brimnes munu koma frá á litla pallinum á �?jóðhátíð líkt og undafarin ár.�?essar eyjahljómsveitir hafa margoft stigið á stokk á �?jóðhátíð og verður hátíðin í ár engin undantekning. Litli pallurinn hefur að geyma hina skemmtilegu eyjastemmingu og er enginn þjóðhátíðargestur svikinn af því að sletta úr klaufunum á litla pallinum. […]

Um 75% sjúkrarýma á Suðurlandi lokast komi til verkfalls Fíh

Nú hefur verkfall BHM staðið í um 8 vikur. Verkfallið hefur þegar haft veruleg áhrif á daglega starfsemi stofnunarinnar. Starfsemi rannsóknarstofunnar hefur dregist saman um 70% í apríl og maí vegna verkfalls ífeindafræðinga. Engar rannsóknir eru framkvæmdar á röntgendeildinni nema í bráðatilfellum að fenginni undanþáguheimild eða vegna útkalla bakvaktar eftir kl. 16:00 á daginn, vegna […]

Nálægt því að sækja stig í Frostaskjólið

Strákarnir okkar í meistaraflokki ÍBV voru mjög nálægt því að sækja stig í Frostaskjólið í gær. Leikskipulagið gekk fullkomlega upp en eftir klaufamistök skoruðu KR-ingar eina markið í leiknum. Fyrir leikinn bjuggust ekki margir við sigri ÍBV en eftir fyrri hálfleikinn voru Eyjamenn alveg eins líklegir til þess að skora mark. Eftir mislukkað úthlaup Guðjóns […]

Einstaka ferðir Strætó falla niður á landsbyggðinni vegna verkfalla

Starfsgreinasambandið hefur boðað til verkfalla dagana 28. og 29. maí og ótímabundins verkfalls frá og með 6. júní. Komi til boðaðra verkfalla falla niður ferðir á eftirtöldum leiðum Strætó á verkfallsdögum: Allar ferðir á leiðum 51,56,59,72,73,74, 75,78 og 79 Leið 52 fellur niður kukkanl 10:00 frá Mjódd og kl 12:35 frá Landeyjarhöfn Flestar ferðir á […]

Drífandi frestar ekki verkfalli

Flóabandalagið og VR hafa frestað fyrirhuguðum verkföllum sem áttu að byrja næst komandi fimmtudag. Drífandi hefur ekki frestað boðuðu verkfalli sem á að byrja á miðnætti aðfaranótt fimmtudagsins 28. maí en þetta kemur fram í tilkynningu sem Drífandi sendi frá sér Hér má lesa tilkynninguna í heild sinni; Flóabandalagið og VR hafa frestað fyrirhuguðum verkföllum […]

Herjólfur í �?orlákshöfn í dag

Herjólfur siglir til �?orlákshafnar í dag þann 26. maí en ófært er til Landeyjahafnar vegna ölduhæðar en klukkan 07:00 var ölduhæðin 2,4 í Landeyjum. Brottför er sem hér segir; Brottför frá Vestmannaeyjum 08:30 og 15:30 Brottför frá �?orlákshöfn 11:45 og 19:15 (meira…)

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.