Enn fullt af pysjum

Enn eru að berast fjöldi pysja í pysjueftirlitið þrátt fyrir að kominn sé 5. október. Fólk er jafnvel að finna 10-15 pysjur á kvöldrúntinum. Í dag var komið með enn fleiri pysjur en síðustu daga eða samtals 262 pysjur. Núna eru þær orðnar 3231 talsins. Með sama áframhaldi ættum við að geta tvöfaldað árið 2012 […]

Fékk 11000 volta straum í gegnum sig

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og sinnti hinum ýmsu verkefnu sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram og engin teljandi útköll á öldurhús bæjarins. Tvö þjófnaðarmál komu til kasta lögreglu í liðinni viku og var í báðum tilvikum um að ræða fjóra 14 ára drengi. Höfðu þeir stolið neftóbaki […]

Brotist inn í mælingabát í Landeyjahöfn

Aðfaranótt laugardags var brotist inn í mælingabát Samgöngustofu sem um þessar mundir er í Landeyjahöfn. Báturinn var nýkominn á staðinn og hafði ekki verið sjósettur heldur var á kerru á bryggunni. Lögreglumenn á Hvolsvelli í samvinnu við lögreglu í Vestmannaeyjum hafa upplýst málið. Í ljós kom að tveir einstaklingar sem höfðu farið í bílaleigubíl með […]

Sito og Barden áfram hja ÍBV

ÍBV er að ganga frá framlengingu á samningi við spænska framherjann Jose Enrique Seoane Vergara eða Sito, en þetta kemur fram inni á Fótbolti.net Sito kom til ÍBV í júlí síðastliðnum og átti stóran þátt í að hjálpa liðinu að halda sæti sínu í Pepsi-deildinni með því að skora sex mörk í ellefu leikjum. �??�?að […]

Knattspyrnusumarið rifjað upp – myndband

Eins og fyrr segir var knattspyrnusumarið gert upp í Höllinni á laugardaginn. �?ar voru þeir sem þótt standa sig best í sumar verðlaunaðir, og þóttu Hafsteinn Briem og Sigríður Lára best. �?ar var sumarið rifjað upp að hætti Sighvatar Jónssonar hjá Sigva-media en fyrirtækið fagnar einmitt 10 ára afmæli þessa dagana í Einarsstofu. Myndbandið má […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.