Fékk 11000 volta straum í gegnum sig
Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og sinnti hinum ýmsu verkefnu sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram og engin teljandi útköll á öldurhús bæjarins.
Tvö þjófnaðarmál komu til kasta lögreglu í liðinni viku og var í báðum tilvikum um að ræða fjóra 14 ára drengi. Höfðu þeir stolið neftóbaki og áfengi á tveimur stöðum og sátu við drykkju þegar lögreglan hafði afskipti af þeim. �?eir viðurkenndu þjófnaðinn og er mál drengjanna í meðferð hjá barnaverndaryfirvöldum.
Eitt mál er varðar brot á lyfjalögum kom inn á borð lögreglu í vikunni en um var að ræða sendingu í pósti sem í voru sterar. Viðurkenndi viðtakandi sendingarinnar að vera eigandi efnisins og telst málið upplýst.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í liðinni viku og var í öðru tilvikinu um minniháttar árekstur að ræða og engin slys á fólki. Í hinu tilvikinu var um að ræða harðan árekstur á gatnamótum Höfðavegar og Ofanleitisvegar og þurfti að flytja bæði ökutækin í burtu með kranabifreið. Engin slys urðu á fólki.
Laust fyrir hádegi þann 2. október sl. var lögreglan kölluð að HS-veitum vegna vinnuslyss en þarna hafði starfsmaður HS-veitna fengið í gegnum sig 11000 volta straum og fór straumurinn í gegnum líkama mannsins frá hægri hendi og út um vinstra hné. Brenndist maðurinn nokkuð við það og var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum til aðhlynningar

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.