Skattahugmyndir VG og Samfylkingar er árás á kjör fólks
25. október, 2017

Á sama tíma og launþegar ríkisvaldsins eru að leggja fram launakröfur sínar er áhugavert að bera saman skattastefnu Sjálfstæðisflokksins og vinstri flokkanna á Alþingi. VG og Samfylkingin hafa boðað tugmilljarða aukningu ríkisútgjalda næstu 5 árin eða á bilinu 250-360 milljarða.

Þessar tillögur kom fram við umræður um 5 ára fjármálaáætlun í þinginu sl. vor og kosta um 50-77 milljarða á ári. Til þess að ná inn tekjum til að standa undir þessum auknu útgjöldum hafa VG og Samfylkingin boðað miklar skattahækkanir. Boðun á hækkun veiðigjalda kemur ekki á óvart og enn síður kemur það á óvart að þeir sem eru eldir en 60 ára og eiga skuldlausar eignir sem fá kaldar kveðjur frá skattatvíburunum VG og Samfylkingunni með boðun á auðlegðarskatti.

Það er ekkert nýtt í því að þeir flokkar leggi byrgðar á eldra fólkið umfram aðra. Skattatvíburarnir lögðu mikla áherslu á það í þinginu að laun lækna og hjúkrunarfólks hækkaði eins og raun varð á í síðustu kjarasamningum heilbrigðistétta. Nú leggja tvíburarnir skattaglöðu mesta áherslu á að ná þeim hækkunum til baka með sérstökum hátekjuskatti sem læknar og hátt launaðar heilbrigðisstéttir falla í. Fyrst krefjast skattglöðu tvíburarnir VG og Samfylkingin bættra kjara heilbrigðisstétta en vilja síðan draga ávinninginn til baka í ríkissjóð.

Þá afnámu þeir sjómannaafsláttinn og nú á að bæta á saltið í það sár og grípa þá sjómenn sem best bera úr bítum í gildru hátekjuskatts. Sú skattlagning kemur til viðbótar mikilli kjaraskerðingu sem sjómenn hafa orðið fyrir vegna styrkingu krónunnar, en launaskerðing þeirra síðust misserin má telja í tugum prósenta líklega 35% og kveðjan frá skattatvíburunum því köld. Þessi draumahátekjuskattur skattatvíburanna er þó aðeins brot að því sem þarf til að loka útgjaldagatinu sem þeir boða en fram hefur komið að 76% hátekjuskattur á laun umfarm 2 mkr. á mánuði skili aðeins 2,7 milljörðum upp í 50-70 milljarða útgjaldaaukningu VG og Samfylkingar á ári. Það verður því leitað til almennings um það sem á vantar.

Skattastefna Sjálfstæðisflokksins er klár og liggur fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn stóð fyrir því á kjörtímabilinu 2013-2016 að afnema öll vörugjöld og tolla þó enn séu tollar á landbúnaðarvörum. Áhrifin eru lægra vöruverð sem skilar sér beint í vasa neytenda. Neðra þrep tekjuskatts var lækkað úr 40% eftir persónuafslátt í 37% og Sjálfstæðisflokkurinn boðar  að lækka þrepið í 35%. Milliþrepið í tekjuskattinum var afnumið og millitekjuhópurinn fór því í neðra skattþrepið, en hærra þrepið er 46% eftir að persónuafsláttur er nýttur. Þessar skattalækkanir, aukin kaupmáttur, lág verðbólga og verulegar launahækkanir á vinnumarkaði hafa trygg heimilunum í landinu betri afkomu en áður hefur þekkst.

Hér liggja klárar línur í skattamálum. Það verður kosið um áframhaldandi skattalækkunarstefnu Sjálfstæðisflokksins sem mun skila hjónum með  meðaltekjur um 600 þúsund krónum meira í ráðstöfunartekjur á ári. Eða skattahækkunarstefna skattatvíburanna í VG og Samfylkingu sem þeir fara ekki leynt með og mun leggjast þungt á allan almenning í þessu landi. Hlustið bara vandlega á hvað þeir boða í skattamálum, þó aðallega hverju þeir vilja ekki svara.

Ég mun kjósa með bættum hag heimilanna í landinu. Kjósum X-D á kjördag.

 

Ásmundur Friðriksson alþingismaður.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst