Minning: Einar Óskarsson

Einar í Stakkholti er látinn og það er sárt að horfa á eftir miklum hæfileikum og lífsgleði með ótímabærum dauða. Einar ólst upp í nærveru við ær og kýr á mörgum heimilinum við Vestmannabraut og sem barn var hann við bústörf hjá afa og ömmu á Arnarhóli, sem hann nefndi síðar heimili sitt í Kollafirði. 

Ég man hvað ég horfði stoltur á frænda minn þegar ég ólst upp í rishæðinni í Stakkholti. Hann var kröftugur og lífsglaður ungur maður með afar smitandi hlátur og góða nærveru. Gaui og Raggi á Látrum voru í næsta húsi eins og frændur okkar á Faxastíg 2b, Þorsteinn, Gísli, Snorri og Kristinn. Þessir peyjar voru að upplagi náttúrubörn sem ólust upp í samfélagi dýra og náttúru Eyjanna. Veiði- og fjallamennska var stór þáttur í æsku þeirra.

Loftrifflar og byssur komu fljótt við sögu hjá mörgum Eyjapeyjum og Einar var áhugasamur um skot- og veiðimennsku. Við Einar ræddum það á spítalanum síðasta haust og vetur hvað lífið var frjálslegt í Eyjum í gamla daga, þegar hann og peyjarnir voru farnir að skjóta úr rifflum og haglabyssum rétt uppúr fermingu.

Ég man þegar fugl var skotinn niður á strompinum á Björkinni hjá Halla Kela og Öllu. Fjaðrir, fiður og blóð dreifðist um þakið og þakrennuna þar sem fuglinn sjálfur lá steindauður. Þá var hlaupið með stiga og fuglinn sóttur áður en Halli Kela áttaði sig, en snyrtimennið var marga daga að hreinsa blóð af þakinu og rennunni með borðtusku. En vatni var safnað af þökum húsa í Eyjum á þessum árum og ekki gott að fá mikið af fjöðrum og fuglablóði í neysluvatnið.

Þetta var ekki í eina skiptið sem byssuskot komu við sögu milli húsa í miðbænum í Eyjum. Byssuhvellir og blóðugar vambir í sláturtíðin á haustin, gærur á veggjum og lambahausar í hrúgu. Lóðirnar voru eins og vígvellir hjá Siggu frænku í Breiðholti og afa á Arnarhóli. Ef þetta gerðist í dag væri sérsveit lögreglunnar mætt á þyrlum til að skakka leikinn. Ég man ekki eftir því að nokkur hafi amast yfir þessu eða Einar skammaður af ráði fyrir þessi strákapör í gamla daga.

Þá man ég hvað mér þótti hann glæsilegur á svörtu 150 cc Hondunni sem hann átti. Það var toppurinn í þá daga þegar helstu töffarar bæjarins óku um á slíkum ofurhjólum. Einar í Stakkholti var fyrirferðarmikill ungur maður sem hafði ekki látið námið trufla æskugleðina. En hann tók kúvendingu við 17 ára aldur og sneri sér að náminu að fullu. Lauk landsprófi og fór í Menntaskólann á Laugarvatni sem hann tók með trompi og varð líffræðingur frá Háskólanum í Pittsburgh í USA og kennari við MH í áratugi. Hann vann fyrir náminu heima í Eyjum á sumrin og vorum við saman á sjó sumarið 1972 og svo kom hann með Peggý og þau unnu við hreinsunina í Eyjum sumrin eftir gos.

Þá var oft mikið fjör á sögukvöldunum en Einar eins og margir í okkar fjölskyldu afbragðs sögumaður. En fjörið var valtara þegar líða tók á fullorðinsárin og þó að vinirnir væru margir var einn óvinur sem hann réði ekki við. En góðu minningarnar lifa í hjörtum okkar. Blessuð sé minning frænda míns Einars í Stakkholti. Ég votta börnum hans, systrum og fjölskyldu samúð.

 

Ásmundur Friðriksson.

Nýjustu fréttir

Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar
Ykkar er valið
Niðurstöður prófa – Vestmannaeyjar í einstakri stöðu
Að alast upp í Vestmannaeyjum 
Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.