Jólaball í Landakirkju – myndir

�?að var líf og fjör í Landakirkju þegar árlegt jólaball fór þar fram milli jóla nýárs. Fastir liðir voru að sjálfsögðu á sínum stað, dansað í kringum jólatré, heilsað upp á jólasvein og gætt sér á smákökum inn á milli til að viðhalda orkunni. Hér má sjá myndir frá viðburðinum. (meira…)

Hugljúfir jólatónleikarnir í Hvítasunnukirkjunni – myndir

Föstudaginn fyrir aðfangadag fóru fram jólatónleikar í Hvítasunnukirkjunni undir nafninu Jólahvísl. �?hætt er að segja að lagavalið hafi verið fjölbreytt og sömuleiðis framsetningin. �?emað var einfaldlega hugljúft, hlýtt og notalegt og var það sannarlega raunin. �?skar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir. (meira…)

Golfvöllur Vestmannaeyja í auglýsingu FootJoy

Í lok júlí 2017 kom hingað til lands hópur á vegum FootJoy til að taka upp auglýsingaefni. Fjórum heppnum kylfingum var boðið í einstaka golfferð til Íslands til að prófa nýjar vörur frá FootJoy við allar þær mismunandi aðstæður sem íslenskt sumar hefur uppá að bjóða. Rástímar voru bókaðir hjá Keili, í Vestmannaeyjum og Brautarholti […]

Björk Elíasdóttir er matgæðingur vikunnar: Túngötulasagne

Takk fyrir kæra mágkona að skora á mig, fiskrétturinn þinn er æði búin að prófa hann og mæli hiklaust með honum, enda er Guðmunda snillingur i eldhúsinu. �?g ætla að koma með lasagne, og mæli með að gera þetta nokkrum klst. áður en á að borða. �?að er mikið betra að gera þetta þannig. �?g […]

KSÍ jafnar árangurstengdar greiðslur hjá konum og körlum

Guðni Bergsson, formaður KSÍ, tilkynnti á blaðamannafundi kvennalandsliðsins í dag að stjórn KSÍ hefði ákveðið að jafna árangurstengdar greiðslur hjá karla- og kvennalandsliðum Íslands. �?etta var samþykkt einróma á fundi stjórnar KSÍ. KSÍ fetar þar með í fótspor norska knattspyrnusambandsins sem ákvað að fara sömu leið í byrjun desember. (meira…)

Jóla- og áramótasprell ÍBV íþróttafélags – myndir

Föstudaginn 29. desember sl. fór fram árlegt jóla- og áramótasprell ÍBV en þar gefst áhugasömum ungmennum tækifæri á að fara í gegnum skemmtilegar þrautabrautir. Var handknattleiksdeildin með sína braut í Íþróttamiðstöðinni og knattspyrnudeildin í Eimskipshöllinni. Í þokkabót sáu valinkunnar íþróttahetjur meistaraflokka ÍBV um að halda utan um sprellið og leiðbeina krökkunum í gegnum brautirnar. �?skar […]

Jólahúsið 2017

Árlega velja Lionsmenn í Vestmannaeyjum, í samstarfi við HS veitur, jólahús Vestmannaeyja. Í ár var húsið við Hásteinsveg 21 valið og eru það hjónin Kristbjörg Grettisdóttir og Sigurður �?órarinsson sem eiga fallega jólahúsið í ár. (meira…)

Ísfélagið bætir í flotann

Núna í lok árs gerði Ísfélagið kaup á ísfisktogaranum Ottó N. �?orlákssyni RE 203. Báturinn var áður í eigu HB Granda. Söluverðið er 150 milljónir króna og verður það greitt við afhendingu sem fer fram eigi síðar en 31. maí næstkomandi. Ottó N. �?orláksson var smíðaður árið 1981 í Garðabæ og hefur skipið reynst afburðar […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.