Björk Elíasdóttir er matgæðingur vikunnar: Túngötulasagne
Takk fyrir kæra mágkona að skora á mig, fiskrétturinn þinn er æði búin að prófa hann og mæli hiklaust með honum, enda er Guðmunda snillingur i eldhúsinu.
�?g ætla að koma með lasagne, og mæli með að gera þetta nokkrum klst. áður en á að borða. �?að er mikið betra að gera þetta þannig.
�?g byrja á því að steikja 1 lauk og 1 hvítlauk saman.
Síðan set ég ca. 600-700 gr. af nautahakki út í.
Læt malla um stund.
Bæti síðan niðursoðnum tómötum, lítilli dós af tómatpúrru, 5 gulrótum sem ég sker niður smátt, krydda með oregano, salti, pipar og pizzakryddi.
�?að má líka setja smá vatn út í þetta.
Klippi góðan slurk af ferskri steinselju yfir.
Læt þetta malla í ca. 30 mín.
Raða í eldfast mót sem ég er búin að smyrja með olíu.
Tortillakökur yfir allt.
Hakkblanda.
Yfir þetta set ég kotasælu, rjómaost og piparost (betra að hafa vel af þessu).
Síðan aftur sama röð.
Að endingu kemur niðursneiddur ostur.
Baka í ca. 40 mín.
Gott að bera fram salat og brauð með.
�?g ætla að skora á Svövu Gísla í bankanaum og veit að hún á fullt af flottum uppskriftum í höfði sínu.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.