Hákon Daði genginn til liðs við ÍBV

Hornamaðurinn knái Hákon Daði Styrmisson er genginn til liðs við ÍBV á nýjan leik en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í kvöld. Hákon Daði, sem er fluttur heim til Eyja, rifti samningi sínum við Hauka fyrr í vikunni en hann hefur verið á mála hjá félaginu sl. tvö ár. Ljóst er að […]

Pepsi-deild kvenna: Valur hafði betur í kvöld – myndir

Val­ur vann ÍBV 3:1 í Pepsi-deild kvenna í knatt­spyrnu núna í kvöld. Elín Metta J­en­sen skoraði tvö mörk fyr­ir Val og Thelma Björk Ein­ars­dótt­ir eitt. Shameeka Fis­hley skoraði mark ÍBV. ÍBV með er nú með sex stig. Myndir – �?skar Pétur Friðriksson (meira…)

Mjólkurbikar karla: Eyjamenn úr leik í bikarnum

Ljóst er að karlalið ÍBV í knattspyrnu mun ekki verja bikarmeistartitilinn eftir að liðið tapaði 3:2 fyrir Íslandsmeisturum Vals í kvöld. �?að tók Valsmenn einungis sex mínútur að skora fyrsta mark leiksins en þar var að verki Sigurður Egill Lárusson. Kaj Leó í Bartalsstovu jafnaði metin fyrir Eyjamenn í upphafi síðari hálfleiks eftir skot af […]

H-listi, Fyrir Heimaey þakkar fyrir stuðninginn

H-listi, Fyrir Heimaey þakkar fyrir stuðninginn í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru síðustu helgi. Félagið var stofnað þann 12. apríl siðastliðinn. �?ann 22. apríl var framboðslisti birtur og í framhaldinu hófst kosningabarátta þar sem gleði, jákvæðni, samvinna og traust var haft að leiðarljósi og var uppskeran þrjú sæti í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Við erum þakklát og stolt […]

Grétar og Friðrik framlengja

Grétar Þór Eyþórsson og Friðrik Hólm Jónsson eru búnir að framlengja við ÍBV. Það er því ljóst að vinstra hornið verður vel mannað áfram með Grétar sem er hokinn af reynslu og Friðrik sem er einn efnilegasti leikmaður landsins í þessari stöðu. (meira…)

Jón og Friðrik Jónssynir semja lagið í ár

�??�?etta erum við að hafa gaman og vonandi verður útkoman góð,�?? segir Friðrik Dór Jónsson, en þeir Jón Jónsson, bróðir hans, eru búnir að semja tvö �?jóðhátíðarlög. Annað er viljandi þakið klisjum og er alvöru �?jóðhátíðarlag samkvæmt Jóni. Hitt er í smíðum en þegar Fréttablaðið náði í skottið á þeim bræðrum voru þeir í stúdíói […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.