Mjólkurbikar karla: Eyjamenn úr leik í bikarnum
Ljóst er að karlalið ÍBV í knattspyrnu mun ekki verja bikarmeistartitilinn eftir að liðið tapaði 3:2 fyrir Íslandsmeisturum Vals í kvöld.
�?að tók Valsmenn einungis sex mínútur að skora fyrsta mark leiksins en þar var að verki Sigurður Egill Lárusson.
Kaj Leó í Bartalsstovu jafnaði metin fyrir Eyjamenn í upphafi síðari hálfleiks eftir skot af löngu færi. Sigurður Grétar Benónýsson kom ÍBV síðan yfir með marki á 71. mínútu eftir stoðsendingu fyrirliðans Sindra Snæs Magnússonar. Sex mínútu fyrir leikslok jafnaði Sindri Björnsson metin fyrir Valsmenn. �?rfá­um mín­út­um síðar fékk Sindri Snær sitt annað gula spjald í leiknum og var fyrir vikið rekinn af velli. Tíu Eyja­menn héldu út og því þurfti að fram­lengja. �?ar skoraði Tobias Thomsen sigurmarkið á 101. mínútu og tryggði heimamönnum farseðilinn í átta liða úrslitin. Eyjamenn sitja hins vegar eftir með sárt ennið eftir hetjulega baráttu.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.