Meðal þess sem fermingarbörnin fá að kynnast í vetur er þróunarsamvinna og hjálparstarf á vegum kirkjunnar okkar. Við njótum samstarfs við starfsfólk Hjálparstarfs kirkjunnar sem hefur útbúið efnið sem við notum, myndir og upplýsingar um líf fólksins á verkefnasvæðum í Afríku. Fermingarbörnin fá að kynnast erfiðleikum sem fólkið glímir við og við munum ræða ábyrgð okkar á því að allir jarðarbúar fái lifað mannsæmandi lífi. Síðan ganga fermingarbörnin í hús og safna framlögum til verkefnisins sem hefur verið kynnt. Mörg hafa reynslu af því að ganga í hús og safna fyrir íþrótta- og félagsstarfi. Fyrir söfnunina fá börnin leiðbeiningar frá okkur um framkomu, öryggi og að gleyma ekki að vera vel klædd. Þau fara a.m.k. tvö eða fleiri saman.

Í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar, sem okkar kirkja stendur að, höfum við skipulagt söfnun í Vestmannaeyjum. Söfnunardagur þessa verkefnis er í dag 31.október kl. 17:00.

Við teljum að með verkefninu gefist tækifæri til að fræða fermingarbörnin um boðskap Krists á áþreifanlegan hátt. Með því skapast einnig mótvægi við síbylju neikvæðra frétta og tækifæri til að skynja að öll getum við lagt eitthvað af mörkum. Á unglingsárum þegar skilningur vex og ungt fólk er að móta sér lífsstíl er mikilvægt að fá að setja sig í samhengi við aðra í heiminum og skynja kraft sinn til þess að breyta rétt og hafa áhrif.

Verkefni þetta var fyrst unnið fyrir nítján árum og hefur gefist mjög vel. Fermingarbörn í fleiri en 60 sóknum um land allt taka þátt nú.