Eyverjar skora á bæjarráð

Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum skora á bæjarráð Vestmannaeyja að taka afstöðu með því að lækka kosningaaldur í 16 ár. Á aðalfundi Eyverja sem haldinn var í gær var eftirfarandi ályktun samþykkt,

Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, skora á bæjarráð Vestmannaeyja að taka afstöðu með því að lækka kosningaaldur í 16 ár. Með því er verið að styðja við aukna lýðræðisþátttöku ungs fólks. Dvínandi kosningaþátttaka ungs fólks er áhyggjuefni og hafa rannsóknir sýnt að þeir sem nýta kosningarétt sinn ungir gera það frekar alla ævi. Einstaklingar sem náð hafa 16 ára greiða þar að auki óskertan tekjuskatt og útsvar ásamt því að taka fullan þátt í samfélaginu og ættu því eðli málsins samkvæmt að geta haft áhrif með kosningaþátttöku hvernig fjármunum ríkis og sveitarfélaga er ráðstafað.

Áfram ungt fólk og frelsi einstaklingsins

Ályktunin hefur einnig verið send til Alþingis sem umsögn við frumvarp um lækkun kosningaaldurs.