Helgi Sigurðsson tekur við ÍBV

Helgi hefur samið við ÍBV til 3 ára og tekur við sem aðalþjálfari liðsins, þetta var kynnt á fjölmiðlafundi í dag sem ÍBV boðaði til. Hann tekur við af Ian Jeffs tók við stjórnartaumunum tímabundið í sumar eftir að Portúgalinn Pedro Hipólito var rekinn á miðju tímabili. Ian Jeffs verður aðstoðarþjálfari með Helga. Helgi hóf […]

Ný Bergey afhent í Noregi

Í dag var ný Bergey VE afhent Bergi-Hugin, dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar í Vestmannaeyjum, í Aukra í Noregi. Bergey er eitt af sjö skipum sem skipasmíðastöðin Vard smíðar fyrir íslensk fyrirtæki og er hún systurskip Vestmannaeyjar VE sem afhent var Bergi-Hugin í júlímánuði sl. Skipið er hið glæsilegasta og í alla staði vel búið. Um er að […]

Opna Sæheima aftur

Bæjarráð fundaði í hádeginu og voru náttúrugripir í Sæheimum meðal annars til umræðu. Á fundi bæjarráðs þann 17. september sl., var framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs falið að fylgja því eftir að koma þeim safnskosti Sæheima sem ekki stendur til að sýna í nýju safni Sea Life Trust, í tímabundið húsnæði þar sem munirnir geta verið […]

Díana Óskarsdóttir tekur við sem forstjóri HSU

Díana Óskarsdóttir hóf í dag störf sem forstjóri HSU og sendi birti af því tilefni þessa kveðju á heimasíðu stofnunarinnar. Kæra samstarfsfólk Í dag þann 1. október 2019, tek ég við embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.  Ég er afar stolt af því að vera komin í ykkar öfluga hóp og hlakka til að starfa með ykkur. […]

Alþjóðahafrannsóknaráðið leggur til minnkun í síld en aukningu í makríl

Í dag veitti Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) ráð um veiðar ársins 2020 fyrir norsk-íslenska síld, makríl og kolmunna. Þessi ráðgjöf hefur bein áhrif á veiðar Íslendinga sérstaklega í norsk-íslensku síldinni þar sem ráðið leggur til 11% lækkun og gera má ráð fyrir að hlutdeild Íslendinga lækki sem því nemur. Áhrifin af breytingunni í Makríl er erfiðara að […]

Besta lundaball ársins – myndir

Hið árlega Lundaball fór fram í Höllinni á laugardaginn. Ballið sem er árshátíð bjargveiðimanna, var í höndum Bjarnareyinga að þessu sinni og þótti það hafa heppnast vel.  Tæplega 400 manns fylltu Höllina á mat og skemmtun. Auk skemmtilegara myndbanda frá Bjarnareyingum hélt Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra, skemmtilega tölu og Elvis Presley mætti á svæðið. Hinir […]

HS Veitur

Vegna vinnu við tengingu í kyndistöð, þarf að loka fyrir heitt vatn milli kl.10:00-12:00 miðvikudaginn 2 okt. 2019. (meira…)

Hvarf Geirfinns er enn til rannsóknar í Eyjum

Settur ríkissaksóknari vísaði ábendingu um afdrif Geirfinns Einarssonar til frekari rannsóknar og meðferðar hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Þar er málið enn og unnið að gagnaöflun. Teknar voru skýrslur af tveimur vitnum 2016 um meinta atburði í Vestmannaeyjum daginn eftir hvarf Geirfinns í Keflavík. Halla Bergþóra Björnsdóttir, settur ríkissaksóknari, sem falið var fyrr á árinu að taka afstöðu […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.