Settur ríkissaksóknari vísaði ábendingu um afdrif Geirfinns Einarssonar til frekari rannsóknar og meðferðar hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Þar er málið enn og unnið að gagnaöflun. Teknar voru skýrslur af tveimur vitnum 2016 um meinta atburði í Vestmannaeyjum daginn eftir hvarf Geirfinns í Keflavík.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, settur ríkissaksóknari, sem falið var fyrr á árinu að taka afstöðu til rannsókna á tveimur ábendingum varðandi afdrif Guðmundar og Geirfinns Einarssona, hefur vísað ábendingu um hvarf Geirfinns til frekari rannsóknar hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum.
„Málið er enn í rannsókn,“ segir Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum. Rannsóknin sé tafsöm vegna þess hve gamalt málið er en gagnaöflun standi yfir. Hún vill ekki tjá sig um málið að öðru leyti.
Ábendingin kom frá manni sem bar að hafa séð þrjá menn koma á smábáti til hafnar í Vestmannaeyjum 20. nóvember 1974, daginn eftir að Geirfinnur hvarf í Keflavík. Tveir þeirra hafi leitt þann þriðja á milli sín sem hafi verið máttfarinn og virst rænulítill.
Þeir hafi komið inn í verbúð þar sem sjónarvotturinn var staddur og dvalið þar dágóðan tíma í lokuðu herbergi með leyfi kokksins í mötuneyti fyrirtækisins, þar til þeir gengu aftur sömu leið til hafnar og um borð í trilluna.
Nokkru síðar hafi trillan aftur komið að bryggju og mennirnir tveir stigið frá borði. Þann máttfarna hafi hann ekki séð aftur. Mennina tvo hafi hann ekki séð aftur fyrr en nærri tveimur áratugum síðar austur á landi þar sem annar þeirra hafi verið að vinna í tengslum við lagningu háspennulínu fyrir Landsvirkjun.
Lögregla tók skýrslu af manninum og fyrrverandi sambýliskonu hans sem bar um líflátshótun sem þeim hefði borist símleiðis eftir umrædda atburði.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.