Úttekt kostar 50 til 100 milljónir

Úttekt klárast ekki fyrir vorið Vegagerðin telur óraunhæft að óháðri úttekt á Landeyjahöfn verði skilað í mars á næsta ári. Eðlilegra væri að miða við haustmánuði 2020. Ljóst sé að kostnaður við úttekt sem koma ætti að gagni myndi kosta töluverðar fjárhæðir eða 50 til 100 milljónir. Þetta kemur fram í umsögn Vegagerðarinnar við þingsályktunartillögu […]
Framhald á aukinni ferðaþjónusta við fatlað fólk

Fjölskyldu og tómstundaráð ræddi á síðasta fundi sínum aukna ferðaþjónusta við fatlað fólk um kvöld og helgar – framhald af ákvörðun ráðsins frá 219. fundi frá 26. nóvember 2018 Í niðurstöðu ráðsins segir Við gerð fjárhagsáætlunar 2019 var tekin sú ákvörðun til eins árs að bjóða upp á viðbótarþjónustu í formi niðurgreiðslu á leigubílaþjónustu sem […]
Vígðu nýjar þjónustuíbúðir – myndir

Síðastliðið sumar tók Vestmannaeyjabær í notkun fimm þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara í Eyjahrauni 1. Íbúðirnar eru fimm og alls sex íbúar. “Þetta fyrirkomulag á búsetuformi hefur ekki áður verið hjá Vestmannaeyjabæ, svo þetta er í þróun. Með tímanum verða teknar inn fleiri íbúðir í þetta þjónustufyrirkomulag, þar af ein til viðbótar fyrrihluta næsta árs. Þjónustuíbúðir […]
Heimildarmynd um þrettándann sýnd í vetur

Þrettándinn er næsta heimildarmynd framleiðslufélagsins SIGVA media og verður hún sýnd í vetur. Heimildarmyndin Fólkið í Dalnum um Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eftir Sighvat Jónsson og Skapta Örn Ólafsson var frumsýnd síðastliðið sumar og nú fylgir mynd um annan merkilegan menningarviðburð Vestmannaeyja. Eyjafólkið Sighvatur Jónsson, Geir Reynisson og Hrefna Díana Viðarsdóttir hafa unnið að heimildarmyndinni ásamt […]
Feðgarnir Hörður og Friðrik í Einarsstofu á laugardaginn

Ljósmyndir sem spanna 70 ár í Vestmannaeyjum Nýi og gamli tíminn mætast í myndum þeirra feðga, Harðar Sigurgeirssonar ljósmyndara og Friðriks sonar hans í Einarsstofu á laugardaginn kl. 13.00. Hörður starfaði hér sem ljósmyndari um og eftir miðja síðustu öld. Friðrik varð að byrja upp á nýtt eftir að safnið hans varð gosinu að […]
Kokkurinn á bak við myndavélina
Bjarni Sigurðsson sýnir ljósmyndir á sjöttu sýningunni í sýningarröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt í Einarsstofu á laugardaginn kl. 13.00. Bjarni byrjaði snemma að taka myndir og þegar leiðin lá til Eyja heillaðist hann af þeirri veislu sem Vestmannaeyjar eru fyrir auga og ljósop. Hann tók því fagnandi og hefur verið duglegur að munda myndavélina […]