Hópfjármögnun þrettándamyndar hafin

Hópfjármögnun er hafin áKarolina FundfyrirÞrettándann, heimildarmynd SIGVA media. Framleiðendur myndarinnar má styrkja meðal annars með „tröllaklappi á bakið“ og kaupum á bíómiðum. „Við bjóðum upp á fjölbreyttar og spennandi leiðir til að styrkja við framleiðslu myndarinnar,“ segir Sighvatur Jónsson, einn af höfundumÞrettándans. „Á söfnunarsíðu okkar á Karolina Fundgetur fólk keypt heimsókn í tröllasmiðjuna í Eyjum […]
Líkn fer á stjá að selja jólakort

Nú er komið að þeim tíma að Kvenfélagið Líkn fer á stjá að selja jólakortin sín. Munum við ganga götur eins og hægt en annars er hægt að nálgast jólakortin, jólamerkimiðana og tækifæriskortin í Smart, Kletti og á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Allur ágóði af jólakortasölunni okkar rennur í sjúkrahússjóð Kvenfélagsins Líknar. (meira…)
Allra heilagra messa

Næstkomandi sunnudag (3.nóvember) er Allra heilagra messa en þá er látinna ástvina minnst í kirkjum landsins. Landakirkja er þar engin undantekning og munum við minnast þeirra sem hafa kvatt síðastliðna tólf mánuði í Vestmannaeyjum. Tendruð verða ljós fyrir hvern og einn og munum við biðja fyrir ástvinum okkar og minningum okkar tengdum þeim. Allir eru […]