Nú er komið að þeim tíma að Kvenfélagið Líkn fer á stjá að selja jólakortin sín. Munum við ganga götur eins og hægt en annars er hægt að nálgast jólakortin, jólamerkimiðana og tækifæriskortin í Smart, Kletti og á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Allur ágóði af jólakortasölunni okkar rennur í sjúkrahússjóð Kvenfélagsins Líknar.