Gleðilega Þjóðhátíð.......eða nei bíðum aðeins....

Að sitja í sófanum heima hjá mér á föstudegi á Þjóðhátíð, fylgjast með upplýsingafundi Almannavarna og gráta úr mér augun er eitthvað sem ég hélt ég myndi aldrei upplifa. 

Ég á að vera á leiðinni í Dalinn, klyfjuð kökum, lefsum, gosi og alls kyns góðgæti fyrir setningarkaffið í hvíta tjaldinu. Ég á að vera að reka á eftir stelpunum mínum að drífa sig því ég vil sjá og heyra alla setninguna og á meðan dansa fiðrildin í maganum trylltan dans af tilhlökkun fyrir bestu og skemmtilegustu helgi ársins. Helgi sem ég eyði með öllu uppáhalds fólkinu mínu.

En þetta árið herjar, afsakið orðbragðið, fokking Covid á heiminn okkar og hefur sett líf allra á hvolf, vægast sagt. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir að í stóra samhenginu er það ekki mikið mál að Þjóðhátíð sé aflýst en fyrir Þjóðhátíðar-hjartað mitt er það ofsalega sárt og ég viðurkenni að þetta er að gera mig leiðari og daprari en ég hélt það myndi gera. Það má kalla mig dramatíska óhemju og ég skal með glöðu geði taka það hlutverk að mér því síðustu dagar hafa verið hörmung. Já ég hef grátið, ég hef verið ógeðslega geðvond, ég hef efast um aldur minn því mig langar í alvöru að henda mér í gólfið og grenja…..

Ég ætla að leyfa mér að vera sorgmædd, leyfa mér að gráta kannski pínku, leyfa mér að skoða gamlar Þjóðhátíðarmyndir og leyfa mér að vera drullu fúl. En ég ætla líka að þakka fyrir að búa á Íslandi þar sem við erum með hina heilögu Þrenningu og Meistara Kára við stjórnvölin í þessari skelfilegu vá sem að okkur steðjar. Ég ætla að þakka fyrir heilsuna mína og þeirra sem ég elska og þakka fyrir að á meðan ástandið í heiminum er skelfilegt þá stendur Ísland nokkuð vel.

Ég veit það er eflaust erfitt og jafnvel óskiljanlegt fyrir fólk sem ekki elskar Þjóðhátíð að skilja hvernig okkur Þjóðhátíðarfólkinu líður og ég ætla ekki að reyna að útskýra það.

Þegar ég spurði hvort hægt væri að svæfa mig fram á þriðjudag var ég ekki einu sinni smá að grínast, tilhugsunin um enga brennu, enga brekku, engin hlátursköst með fólkinu mínu,engan dans á Litla Pallinum og þeim Stóra þegar Anna Lára segir stop og heimtar að fara þangað, engin hamborgari á leiðinni heim, engin brekkusöngur, engar sjoppuferðir með krílunum og engin Bibba Frænda blys……..þetta bara er ekki hægt……..

En áfram gakk, ég gref djúúúúpt eftir gleðinni minni, þurrka tárin og hlakka til að ári……Ef Covid verður ekki farið  eða bóluefni fundið þá þarf ég alvarlega að taka í lurginn á einhverjum….

Takk fyrir mig yndislega eyja

    

                   Til lífs og til gleði

Ykkar örlítið meyra Þjóðhátíðar-Lóa❤

Nýjustu fréttir

Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu 
Fullfermi á báðum togurum
Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast
Fullorðinsfimleikar hjá Rán
Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.