Veldu Vestmannaeyjar

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa gert það að formlegri tillögu sinni að Vestmannaeyjabær hrindi af stað átaksverkefninu ,,Veldu Vestmannaeyjar”  sem miðar að því að kynna Vestmannaeyjar sem eftirsóknarverðan búsetukost fyrir einstaklinga og fjölskyldur með áherslu á þá sem geta sinnt störfum sínum í fjarvinnu frá Vestmannaeyjum. Breytt íbúaþróun undanfarin 15 ár hefur leitt af sér töluverða fækkun […]

Þjótandi ehf með lægsta tilboð í ljósleiðara

Mánudaginn 30. nóvember voru opnuð tilboð í verkið “Ljósleiðarakerfi í dreifbýli Vestmannaeyjabæjar – Jarðvinna” á verkfræðistofunni EFLU í Reykjavík. Verkið er unnið í samræmi við verkefnið Ísland ljóstengt og hlaut til þess styrk frá fjarskiptasjóði. Eftirfarandi tilboð bárust: Tilboðsuppl. m/vsk S.H. Leiðarinn ehf 37.568.280 Heflun ehf 31.529.232 Þjótandi ehf 31.084.320 Steingarður ehf 44.266.760   Kostnaðaráætlun […]

Maður á ekki að vera feiminn við að kynnast nýju fólki

Vélstjórinn Ágúst Halldórsson ætti að vera flestum Eyjamönnum vel kunnur. Hann er ekki vanur að fljóta með straumnum og eru uppátæki hans margvísleg. Ágúst tók upp á því í síðustu viku að bjóða tveimur mormóna trúboðum í dagsferð til Vestmannaeyja og sýna þeim það helsta sem eyjan hefur upp á að bjóða ásamt því að […]

Nýja slökkvistöðin formlega risin

Í dag urðu tímamót í framkvæmdum að Heiðarvegi 14 þegar fánar voru dregnir að húni en þar með telst nýja slökkvistöðin formlega risin segir í færslu á facebook síðu Slökkviliðs Vestmannaeyja. Vegna samkomutakmarkana og þess ástands sem nú ríkir í samfélaginu var ákveðið að draga einungis fánana að húni í tilefni dagsins og bíða með […]

Ótrúleg óvirðing og meðferð á eigum annara

Notkun á fiskikörum í sjávarútvegi jókst mikið á níunda áratug síðustu aldar þegar útgerðir fóru að notast við kör í stað þess að stía fiskinn um borð. Þessi aðferð var til þess að auka gæði og verðmæti afla til muna. Fiskikör eru til margra hluta nytsamleg og hafa löngum verið nýtt til annara hluta en […]

Helltu niður 1000 lítrum af bjór

Afleiðingar heimsfaraldursins gætir víða í samfélaginu. Blaðamaður hjó eftir því í síðustu viku að þeir félagar á Brothers Brewery sögðu frá því á samfélagsmiðlum að þeir neyddust til að hella niður umtalsverðu magni af bjór sökum ástandsins. Við höfðum samband við Hlyn Vídó Ólafsson, bruggara og spurðum hann út í þetta mál og stöðuna almennt […]

Aldur er bara tala

EYJAMAÐURINN Nýverið opnaði ný vefsíða fyrir eldri aldurshópa sem heitir Aldur er bara tala www.aldurerbaratala.is. Síðan er einnig á fésbókinni https://facebook.com/aldurerbaratala Markmið síðunnar er að gefa eldri aldurshópum tækifæri til að hafa aðgang að fræðslu og ráðgjöf um mál er þá varða hvar sem þeir eru búsettir á landinu en mikil fjölgun er í hópi […]

Fleiri verkefni til Eyja

Dómsmálaráðuneytið hefur falið embætti sýslumannsins í Vestmannaeyjum það verkefni ráðuneytisins að gefa út yfirlýsingu vegna fyrirhugaðrar stofnunar hjúskapar erlendis. Verkefnið felst í móttöku beiðna og fylgiskjala og útgáfu yfirlýsingar, að uppfylltum skilyrðum, um að ekkert sé til fyrirstöðu samkvæmt íslenskum lögum að viðkomandi geti gengið í hjúskap erlendis. Mun sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum taka við verkefninu […]

Viska gerir tilboð í Hvíta húsið

Bæjarráð tók á fundi sínum í vikunni fyrir tilboð um kaup á hluta Vestmannaeyjabæjar á 2. og 3. hæðum eignarinnar að Strandvegi 50 (Hvíta húsinu). Húsið hefur lengi verið til sölu og fáir sýnt því áhuga. Vestmannaeyjabær á að fullu 1. hæð hússins þar sem nú er rekin félagsmiðstöð fyrir unglinga. Að auki á Vestmannaeyjabær […]

Bæjarráð skorar á Reykjavíkurborg

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga var til umræðu á fundi bæjarráðs í gær. Fram hefur komið að Reykjavíkurborg hafi krafið Jöfnunarsjóð sveitarfélaga um 8,7 milljarða króna fyrir meint vangoldin framlög úr sjóðnum og ætli að halda þeirri kröfu til streitu, þrátt fyrir að ríkið hafi hafnað henni. Ljóst er að muni krafan ná fram að ganga munu sveitarfélögin […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.