Nýja slökkvistöðin formlega risin
Í dag urðu tímamót í framkvæmdum að Heiðarvegi 14 þegar fánar voru dregnir að húni en þar með telst nýja slökkvistöðin formlega risin segir í færslu á facebook síðu Slökkviliðs Vestmannaeyja.
Vegna samkomutakmarkana og þess ástands sem nú ríkir í samfélaginu var ákveðið að draga einungis fánana að húni í tilefni dagsins og bíða með formlegan fögnuð þar til betur stendur á og takmörkunum hefur verið aflétt.
Skóflustunga að nýrri slökkvistöð var tekin þann 14. mars og fyrsta steypan rann í mótin tveimur mánuðum síðar eða þann 13.maí s.l. Síðasta uppsteypan í byggingunni var svo 13.nóvember þegar steypt var á milli sperra.
Uppbyggingin hefur gengið gríðarlega vel hingað til, svo eftir hefur verið tekið. Næstu skref eru að klára að loka þakinu svo innivinna, sem nú þegar er hafin að hluta, geti hafist af fullum krafti.
Þetta eru spennandi tímar og verður gaman að fylgjast með þegar þessi nýja og glæsilega aðstaða slökkviliðsins fer að taka á sig endanlega mynd.
Innilegar hamingjuóskir með daginn og áfangann Slökkvilið Vestmannaeyja, Vestmannaeyjabær, 2Þ-verktakar og bæjarbúar allir.
Friðrik Páll Arnfinnsson
Slökkviliðsstjóri

Nýjustu fréttir

Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
Samgöngur – Bréf til forsætis- og innviðaráðherra
Úrslitakeppnin hjá stelpunum að hefjast
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.